Erlent

Enn eykst þrýstingurinn

Wesley Clark, fyrverandi yfirmaður herafla Atlantshafsbandalagsins, hefur bæst í hóp þeirra sem telja að Donald Rumsfeld varnarmálaráðherra Bandaríkjanna ætti að segja af sér. Clark, sem bauð sig fram sem forsetaefni Demókrata fyrir tveimur árum, segir að Rumsfeld hafi ásamt varaforsetanum Dick Cheney ýtt Bandaríkjunum út í stríð í Írak, jafnvel þó að landið hafi ekki haft nein tengsl við hryðjuverkasamtök. Rumsfeld hafi skilað slæmu starfi og nú sé kominn tími á að við starfinu taki maður sem hlusti á undirmenn sína.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×