Skemmtilegustu myndirnar á skemmtilegustu götunni Erla Hlynsdóttir skrifar 9. ágúst 2012 23:43
Íslenskur ljósmyndari seldi veraldlegar eigur sínar , nema ljósmyndavélina, og lagði upp í bakpokaferðalag um Asíu. Hann er nú að opna ljósmyndasýningu undir berum himni. Baldur Kristjánsson ljósmyndari naut liðsinnis félaga sinna í dag við að setja upp ljósmyndasýninguna Austur fyrir fjall, sem opnar í kvöld á Skólavörðustíginum. Það er fyrir tveimur árum sem Baldur fór í ferðalag um Asíu þar sem hann sameinaði áhugamálin tvö, ferðalög og ljósmyndun. Myndirnar á sýningunni eru það sem kallast umhverfisportrett, það er myndir af fólki í sínu eigin umhverfi. Uppáhalds myndina tók Baldur á Killing Fields í Kambódíu þar sem framin voru hrottaleg fjöldamorð. „Hérna megin við girðinguna var ég staddur. Þarna er bara svona minningarvottur um þessi fjöldamorð, fullt af hauskúpum og bara hræðilegir hlutir. Og svo sé ég bara þessa litlu stelpu þarna hinum megin við. Ég veit ekkert hvað hún var að gera þarna. Í raun veit ég oft ekkert hvað er um að vera á myndunum sjálfum. En hún stóð einhvern vegin bara og kíkti yfir girðinguna og ég náði að smella af einni mynd áður en hún bara labbaði í burtu," segir Baldur. Myndirnar á sýningunni eru það sem kallast umhverfis-portret. Mynd sem Baldur tók á Indlandi er líka í uppáhaldi. „Manni fannst eitthvað svo merkilegt, þó Indland sé lýðræðisríki og allt það, að koma á svona staði þar sem kommúnisminn er bara dáður og dýrkaður," segir hann. Þetta er fyrsta sýning Baldurs. Hann er með vinnustofu á Skólavörðustígnum og það blasti því við að setja upp sýningu þar. „Mér fannst bara eins og þetta bara rímaði. Skemmtilegasta gata bæjarins, skemmtilegasta ferðalag sem ég hef farið í og skemmtilegustu myndir sem ég hef tekið. Þetta passaði bara," segir Baldur.
Mest lesið Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent Brotlenti í djúpu gili Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Fleiri fréttir Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Sjá meira