Stóraukin ásókn er í notaða varahluti 9. janúar 2010 04:45 Svona er umhorfs í hluta partageymslu Aðalpartasölunnar í Hafnarfirði. Hingað til hafa smærri partasalar verið ráðandi á markaði með notaða varahluti hér á landi, en þar kann nú að verða breyting á. Fréttablaðið/Anton
Tryggingafélög vilja í auknum mæli nýta notaða varahluti í stað nýrra þegar kemur að lagfæringum tjónabíla. Vegna falls krónunnar hefur verð á nýjum varahlutum tvöfaldast til þrefaldast. Rót er á markaði með notaða varahluti vegna þessa. Þannig hafa sumir smærri partasalar sem rætt hefur verið við óttast fákeppni vegna breytinga á vinnulagi hjá Sjóvá. Þá hafi áhrif að VÍS safni varahlutum á eigin verkstæði með því að rífa þar tjónabíla. Guðmundur Ingi Þorsteinsson, forstöðumaður tjónasviðs Sjóvár, telur fjarri að félagið stuðli að fákeppni. Önnur tryggingafélög hagi málum með öðrum hætti og öflugur markaður sé með varahluti vegna einkabíla. „Þessi geiri hefur hins vegar verið eins í um 20 ár og enginn sýnt viðleitni til að gera betur,“ segir hann. Margháttaður ávinningur fylgi bættri nýtingu varahluta, að ekki sé talað um sparnað á gjaldeyri sem annars færi í að kaupa nýja varahluti. „Síðastliðin ár hafa gríðarleg verðmæti farið í súginn,“ segir hann og kveður félagið hafa litið til Norðurlandanna í leit að fordæmum um öfluga verslun með notaða varahluti. Því hafi verið auglýst eftir samstarfi við fyrirtæki sem vildu kaupa tjónabíla af félaginu til niðurrifs. „Við fengum um 20 umsóknir og völdum þá tvo sem voru með besta heildarpakkann,“ segir hann. Í öðru tilvikinu er um að ræða partasölu sem nýtekin er til starfa fyrir austan fjall. Í hinu er um að ræða hóp fjárfesta sem vinna að því að koma á legg partasölu á varnarliðssvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Guðmundur segir vonir standa til að varahlutasala hefjist þar undir lok mánaðarins. Fulltrúar allra tryggingafélaga sem rætt var við leggja áherslu á að þótt nýta eigi notaða varahluti betur, þá séu öryggissjónarmið höfð í hávegum. Hækkandi verð á notuðum varahlutum virðist hins vegar skrifast á þumalputtareglu í þá veru að notaðir varahlutir kosti um helmingi minna en nýr hlutur. Elías Pétursson hjá Aðalpartasölunni í Hafnarfirði kannast við að verð varahluta hafi hækkað, en það sé þó misjafnt eftir aldri bílanna sem um ræðir. Þannig gildi hálfvirðisreglan ekki alltaf. Steinar Gunnsteinsson, verkstjóri hjá Vöku, kveðst ekki hafa orðið var við hækkun þar, en það kunni að skýrast af því að bílar sem Vaka tekur í niðurrif séu alla jafna komnir til ára sinna. olikr@frettabladid.is
Mest lesið Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira