Sjö kirkjugestir myrtir 9. janúar 2010 04:15 Kristnir koptar í Egyptalandi segjast lengi hafa mátt þola mismunun og áreitni.fréttablaðið/AP
Sjö manns létu lífið þegar þrír vopnaðir menn gerðu í fyrrinótt árás á koptíska kirkju í bænum Nag Hammadí í Egyptalandi. Mennirnir biðu fyrir utan kirkjuna í bifreið og hófu skothríð á mannfjöldann sem streymdi út úr kirkjunni að miðnæturmessu lokinni. Þetta var jólamessa, því jóladagur koptísku kirkjunnar var haldinn í gær. Óeirðir brutust út síðar í gær fyrir utan sjúkrahús í bænum þar sem lík hinna látnu voru geymd. Ættingjar hinna látnu kröfðust þess að fá líkin afhent tafarlaust til greftrunar. Sumir þeirra brutu rúður á sjúkrabifreiðum og beitti lögreglan táragasi til þess að dreifa mannfjöldanum. Talið var að afhending líkanna gæti dregist á langinn af ótta við að útfarirnar verði vettvangur fleiri ofbeldisverka. Lögregla segi höfuðpaur árásanna vera múslima, en hann hefur ekki verið handtekinn enn. Talið er að árásin hafi verið í hefndarskyni fyrir nauðgun tólf ára gamallar stúlku nýverið. Stúlkan er múslimi en árásarmaðurinn kristinn. Messunni lauk klukkutíma fyrr en venja er til vegna hótana sem borist höfðu síðustu dagana fyrir jól.- gb
Mest lesið Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent „Þetta er erfiður mánudagur“ Innlent Fleiri fréttir Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Sjá meira