Öruggur sigur Hollands í leiknum um bronsið | Myndir Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. júlí 2014 00:01 Hollendingar höfðu ástæðu til að gleðjast í kvöld. Vísir/Getty
Holland tryggði sér bronsverðlaun á HM í fótbolta með 3-0 sigri á Brasilíu í leiknum um þriðja sætið í Brasilíuborg í kvöld. Robin van Persie, Daley Blind og Georginio Wijnaldum skoruðu mörk Hollendinga. Hollendingar, sem tefldu fram nánast óbreyttu liði frá undanúrslitaleiknum gegn Argentínu á miðvikudaginn, tóku forystuna á strax á þriðju mínútu þegar van Persie skoraði úr vítaspyrnu. Alsírski dómarinn, Djamel Haimoudi, blés í flautu sína og benti á vítapunktinn eftir að hafa metið það sem svo að Thiago Silva, fyrirliði Brasilíu, hefði togað Arjen Robben niður innan vítateigs. Silva slapp hins vegar með gult spjald. Hollendingar bættu svo við marki á 17. mínútu þegar Blind þrumaði boltanum í markið eftir mistök miðvarðarins Davids Luiz sem átti erfitt uppdráttar í kvöld líkt og í 7-1 tapinu gegn Þýskalandi í undanúrslitunum. Brasilíumenn voru meira með boltann það sem eftir lifði leiks, en mörkin létu á sér standa. Það var helst Oscar, leikmaður Chelsea, sem ógnaði hollensku vörninni að einhverju viti. Hann fékk hins vegar litla hjálp frá samherjum sínum. Wijnaldum bætti svo þriðja marki Hollands við í uppbótartíma eftir fyrirgjöf varamannsins Daryls Janmaat. Lokatölur 3-0, Hollendingum í vil sem unnu til sinna fyrstu bronsverðlauna á HM.Louis van Gaal fékk góða kveðjugjöf í sínum síðasta leik sem stjóri hollenska landsliðsins, en tekur sem kunnugt er við sem þjálfari Manchester United eftir HM.
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Handbolti Slys á æfingu fyrir fjórum árum er enn að eyðileggja fyrir Söru Sport Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Enski boltinn Fabiana brýtur blað í sögunni áður en Jói Kalli tekur við Fótbolti Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Enski boltinn Blaðamannafundur fyrir úrslitaleik Vals í Evrópubikarnum Handbolti Neitaði að svara spurningum um skilnaðinn Sport Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Körfubolti Mætti á þing FIFA úr fangaklefanum Fótbolti Þriðji markahæsti landsliðsmaðurinn leggur skóna á hilluna Fótbolti Fleiri fréttir Margrét Lára: Mér finnst hún hafa verið stórkostleg Chelsea sló spjaldametið í deildinni Hjólaði frá Mongólíu og grét af gleði þegar hann hitti hetjuna Þriðji markahæsti landsliðsmaðurinn leggur skóna á hilluna Umboðsmaður Olise dæmdur í sex mánaða bann Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Fabiana brýtur blað í sögunni áður en Jói Kalli tekur við Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Allegri afklæddist á hliðarlínunni „Sá að þeim leið aldrei illa“ Mætti á þing FIFA úr fangaklefanum Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ „Þetta var ótrúlega erfitt“ Vlahovic tryggði Juventus bikarmeistaratitilinn United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð KA sneri taflinu við í seinni hálfleik Gísli lagði upp í Íslendingaslag og Elfsborg vann risasigur Uppgjörið og viðtöl: Fylkir - Breiðablik 0-2 | Blikar enn með fullt hús Ásdís Karen kom Lilleström á bragðið Kjósa um hvort notkun VAR verði hætt Uppgjörið: Þróttur - Víkingur 0-1 | Þróttarar enn án sigurs Everton boðið neyðarlán til að klára nýja heimavöllinn Gæti haldið áfram eftir allt saman FIFA íhugar að leyfa deildarleiki í öðrum löndum Félagaskiptaglugganum lokað fyrr en vanalega í sumar Fækka landsleikjagluggum og koma á fót HM félagsliða Segja að Mbappé og forseti PSG hafi öskrað á hvor annan Stjóri Spurs ósáttur við viðhorfið: „Þetta er utan félagsins, innan þess, alls staðar“ Sjá meira