Leðurblökumaðurinn þarf stærri skikkju að mati eðlisfræðinema 9. júlí 2012 20:30
Nokkrir nemar í eðlisfræði í háskólanum í Leicester í Bretlandi hafa reiknað út að ofurhetjan Batman gæti hugsanlega svifið, en fallið myndi verða honum að bana. Þannig tóku nemarnir út atriði úr kvikmyndinni Batman Begins, en þar má sjá ofurhetjuna svífa töluverða vegalengd og lenda svo óskaddaða eins og ofurhetjum er tamt. Í rannsókn sinni reiknuðu þeir út að ef ofurhetjan stykki fram af 150 metra hárri byggingu og að skikkja leðurblökumannsins væri 4,7 metrar myndi hann líklega svífa heila 350 metra. En þá fyrst fer stökkið að verða lífshættulegt. Nemarnir reiknuðu út að hetjan myndi svífa á 109 kílómetra hraða og þannig yrði fallið honum að öllum líkindum að bana - sé miðað við að fall á 50 kílómetra hraða er nær örugglega banvænt fyrir venjulegan mann. Í viðtali við nemana á fréttavef Reuters segir neminn David Marshall að ef leðurblökumaðurinn ætli sér að endurtaka svifið í nýjustu mynd sinni, The Dark Knight Rises, þá verði hann að kaupa sér stærri skikkju til þess að draga úr hraðanum. Ef hetjan er ólm í að halda útlitinu óbreyttu, er einnig mögulegt að verða sér úti um einhverskonar mótor eða hreyfil sem gæti dregið úr fallinu. Það ætti svo sem að vera auðsótt mál, sérstaklega í ljósi þess að Blaki á óvanalega fjölbreytt úrval af tækjum og tólum. Svo má náttúrulega benda nemunum á að í draumaborginni er hægt að brjóta flest öll lögmál eðlisfræðinnar - ef ekki öll.
Mest lesið Hljóp inn í brennandi byggingu til að bjarga nágrannanum Innlent Sveitarstjóra ekki heimilt að banna hundahald Innlent Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Erlent Spyr hvort ekki sé tími á að Palestínumenn snúi aftur í friðinn heima Innlent Hátt í sjötíu ár síðan það snjóaði eins lítið Innlent Hvort myndu þau hringja fyrst til baka í Pétur eða Hildi? Innlent Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Erlent 28 prósent Selfyssingar: „Eitthvað í mjólkinni eða smjörinu“ Innlent Erlendir aðilar reyni að hafa vit fyrir Íslendingum Innlent Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Erlent Fleiri fréttir Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Segir Trump ekki reiðan Íslandi Dómsdagsklukkan færð fram Sendir herskipaflota að Íran og hótar „ofbeldi“ Helsta klappstýran sögð slegin yfir sálarástandi Trumps Verða ekki viðstödd réttarhöld stjúpsonarins Vilja veita þúsundum sem dvelja ólölega á Spáni dvalarleyfi Ná saman um myndun minnihlutastjórnar í Hollandi Maður sprautaði illa lyktandi vökva á Ilhan Omar Róa á nýnasistamið í leit að ICE-liðum Dómari stöðvar brottflutning Liam og föður hans Bandaríkin hyggja á heræfingar í Mið-Austurlöndum Svíar líta til kjarnorkuvopna Tónninn breytist með yfirmannaskiptum hjá ICE Tala fallinna og særðra nálgast tvær milljónir Svíar hyggjast lækka sakhæfisaldur „Móðir allra samninga“ Um þriðjungur Dana fær 50 þúsund króna „matartékka“ beint í vasann frá ríkinu Segja mögulegt að yfir 30.000 hafi verið drepin í mótmælunum Franska þingið samþykkti símabann hjá börnum Evrópusambandið og Indland ganga frá fríverslunarsamningi Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Trump sagður hafa lofað óháðum rannsóknum í Minnesota Einn lifði flugslys í Maine af en sjö dóu Hafa fundið lík síðasta gíslsins á Gasa Börnin heima þegar móðir þeirra var stungin til bana Flugferðum aflýst og hvatt til heimavinnu vegna snjókomu Sjá meira