Segir ummæli Davíðs ómakleg 28. mars 2009 19:07 Vilhjálmur Egilsson formaður samtaka atvinnulífsins.
Vilhjálmur Egilsson formaður samtaka atvinnulífsins segir ummæli Davíðs Oddssonar á landsfundi flokksins hafa verið ómakleg en hann láti þau ekki hafa áhrif á sig. Davíð sagði skýrslu Endurreisnarnefndar flokksins sem Vilhjálmur stýrði vera hrákasmíð og hann sæi eftir þeim trjágróðri sem notaður var í prentun skýrslunnar. Vilhjálmur segir að með þessu sé Davíð að gera lítið úr þeim 80 einstaklingum sem stóðu að skýrslunni. „Það getur hver dæmt fyrir sig sem les þessa bók en mér finnst hún góð og að það hafi tekist mjög vel til. Þetta starf var til fyrirmyndar og mikill áhugi sem sýnir að grasrót flokksins er lifandi," segir Vilhjálmur. „En hann gefur þessu fólki þá einkun að þetta sé hrákasmíð eða hvaða orð hann notaði. Menn geta þá bara séð listann yfir þá sem komu að þessu," segir Vilhjálmur en um 80 manns komu að smíði skýrslunnar að hans sögn. Davíð sagði einnig að sá sem ætti að setja saman siðareglur fyrir Sjálfstæðisflokkinn væri maðurinn sem ráðinn var framkvæmdarstjóri Samtaka atvinnulífsins af Jóni Ásgeiri, Hreiðari Sigurðssyni og Hannesi Smárasyni. Vilhjálmur segist nú ekki taka þau ummæli inn á sig, hann sé í ágætis jafnvægi yfir þessu öllu saman. „Ég er bara ráðinn af framkvæmdarstjórn Samtaka atvinnulífsins. Ég man nú ekki hvort Hannes Smárason eða Jón Ásgeir hafi átt aðild að henni en Hreiðar var þar eitt sinn, en ekki þegar ég var ráðinn," segir Vilhjálmur. Vilhjálmur segir ummæli Davíðs hafa verið feilskot. Aðspurður hvort hann hafi átt von á þessu frá Davíð segir Vilhjálmur: „Ekkert frekar en hvað annað. Mér fannst þetta hinsvegar tilefnislaust hjá honum."
Mest lesið Árásarmaðurinn á blótinu með langan brotaferil á bakinu Innlent „Hvaðan kom þetta fyrirbæri eiginlega hér inn á þing?“ Innlent Loka sundlaugum fram yfir helgi vegna kuldans Innlent Eigi að „brenna barnaverndarkerfið til grunna og byrja aftur“ Innlent Ákærður fyrir að skilja kærustuna eftir á fjallinu Erlent Snjókoman náði ekki yfir Hellisheiðina Veður Hræddur um að öfugur hvati leiði til fjölgunar öryrkja Innlent „Þetta hefði ekki þurft að fara svona“ Innlent Jón Gunnarsson biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Lindsay Graham hafi hellt sér yfir Frederiksen og sagt Trump geta tekið Grænland Erlent Fleiri fréttir Jón Gunnarsson biðst afsökunar á orðum sínum Borgin taki til sín fimmtung launahækkunar barnafólks Almannatryggingamálinu frestað en engar breytingar í farvatninu Ótrúlegt hve fáar virkjanir komist í gegnum rammaáætlun Tekur tímabundið við Framsóknarflokknum Hafnar því að strandað hafi á honum að bregðast við menguninni Rúta hafnaði utan vegar og valt Vísbendingar um að þúsund börn á Íslandi sæki ekki skóla Niðursveiflan á vinnumarkaði sé mjög djúp „Hvaðan kom þetta fyrirbæri eiginlega hér inn á þing?“ Landsvirkjun fagnar fleiri nýtingarkostum í rammaáætlun Refsað fyrir að loka á konu og keyra yfir fætur hennar Hræddur um að öfugur hvati leiði til fjölgunar öryrkja Ekki viss um að hægt sé að lappa upp á samband Evrópu og Bandaríkjanna Gengu tíu kílómetra til að geta óskað eftir aðstoð Maðurinn sem lýst var eftir fundinn Bein útsending: Umhverfið í hnattrænu samhengi Eigi að „brenna barnaverndarkerfið til grunna og byrja aftur“ Engin breyting þó veðmálakóngur sé einn eftir Árásarmaðurinn á blótinu með langan brotaferil á bakinu Loka sundlaugum fram yfir helgi vegna kuldans Hvítt í kortunum og snjómokstursteymið í startholunum Getur ekki séð að „heimsendaspár gagnrýnendanna“ séu að rætast „Algjörlega óboðlegt hvernig þetta hefur verið undanfarin ár“ Hafna kröfum bálstofunnar um endurskoðun starfsleyfis „Þetta hefði ekki þurft að fara svona“ Enn enginn matur á boðstólum félagsmiðstöðvanna Sáttur við að staða hans sé auglýst Holtavirkjun og Skrokkölduvirkjun í orkunýtingarflokk Neitar að hafa nauðgað stúlku milli trjáa Sjá meira