Japanir banna sashimi úr nautalifur BBI skrifar 26. júlí 2012 10:11 Á myndinni er hvala-sashimi, sem hefur ekki verið bannað. Mynd/AFP
Japanir hafa tekið upp á því að banna sölu sashimi úr nautalifur sem áður var einn þjóðarrétta þeirra. Þessi sérstæði réttur var upphaflega aðeins gerður úr lifur frá japönskum nautgripum en í síðari tíð hafði notkun erlendra nautgripa aukist. Ótrygg gæði vörunnar hafa nú einfaldlega leitt til þess að japönsk yfirvöld hafa bannað sölu á hrárri lifur í þessum tilgangi. Salan er óheimil frá því í byrjun júlí, en rétturinn er gerður úr þunnum og hráum sneiðum af nautgripalifur. Á vef Landssambands kúabænda segir að þetta hafi verið einn meginréttur svonefndra yakiniku veitingastaða. Sashimi er japanskur réttur sem yfirleitt er gerður úr hráum fiski. Þó þekkjast annars konar tegundir, t.d. sashimi úr nautalifur og kjúkling. Sashimi er oft fyrsti réttur í japönsku eldhúsi. Vesturlandabúar rugla gjarna saman orðunum sashimi og sushi og líta á réttina sem eitt og sama fyrirbærið. Í raun er um sinn hvorn réttinn að ræða. Orðið sushi á við rétti sem gerðir eru með edik-legnum hrísgrjónum. Sashimi er hins vegar þunnt skornar sneiðar úr hráum fiski eða kjöti án hrísgrjóna.
Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Innlent Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Innlent Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Innlent Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Erlent Fleiri fréttir Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Sjá meira