Fótbolti

Capello ráðinn landsliðsþjálfari Rússa

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Nordicphotos/Getty
Fabio Capello er tekinn við sem þjálfari karlalandsliðs Rússa í knattspyrnu. Reuters greinir frá þessu.

Capello tekur við starfinu af Hollendingnum Dick Advocaat sem sagt var upp störfum að loknu Evrópumótinu í Póllandi og Úkraínu í sumar. Rússar komust ekki upp úr riðli sínum.

Hávær orðrómur hefur verið um það í lengri tíma að Capello tæki við landsliðinu en Ítalinn sagði upp störfum sem landsliðsþjálfari Englendinga í febrúar.

Engar opinberar upplýsingar liggja fyrir um samning Capello. Fjölmiðlar í Rússlandi telja laun kappans þó vera um tíu milljónir evra á ári eða sem nemur rúmum einum og hálfum milljarði íslenskra króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×