Segir að vegið sé að verkamönnum 27. nóvember 2005 03:30 Heimili starfsmannanna litháísku "
Mönnunum þykir að sér vegið og það er alveg ljóst að Íslendingar erlendis myndu ekki sætta sig við svona afskipti líkt og þessir menn hafa þurft að þola hér," segir Hjörleifur Jónsson, eigandi verktakafyrirtækisins H. Jónssonar. Nú stendur yfir lögreglurannsókn á starfsmannamálum fyrirtækisins að beiðni Verkalýðsfélags Akraness en þar vinna nú níu Litháar og leikur grunur á að ekki sé löglega að málum þeirra staðið. Laufey Sigurðardóttir, heilbrigðisfulltrúi á Akranesi, gerði nýlega úttekt á húsakosti starfsmannanna. "Aðstaða þeirra er í raun og veru ekki svo slæm en vinnuveitandi þarf að sækja um sérstakt starfsleyfi til að nota það í þessum tilgangi og þar sem þetta var iðnaðarhús áður þarf hann að sýna okkur fram á að hann hafi fengið það samþykkt sem íbúðarhúsnæði," segir hún. Húsnæðið er um 300 fermetrar og voru þar áður skrifstofur og sólbaðsstofa. Hjörleifur segir að hann hafi fengið það samþykkt hjá skipulagsnefnd sem íbúðarhúsnæði árið 1999. Þar búi sex manns en þeir matist annars staðar en áður hafi níu manns búið þar. "Hann hefur frest til mánudags að skýra sín mál," segir Laufey. Tveir af þeim starfsmönnum sem kallaðir voru til yfirheyrslna hjá lögreglu reyndust vera án tilskilinna leyfa. "Ég sendi inn öll göng til að endurnýja leyfi þeirra en Útlendingastofnun sendi mér bréf og taldi einhvern formgalla á, ég var ekki eins vel að mér í þessum pappírsmálum og konan mín sem var vön að sjá um þetta en hún féll frá fyrr á árinu. Ég taldi leyfin vera í lagi svo þetta er spurning um formsatriði en ekki viljandi brot," segir Hjörleifur. "Ég hef ekkert að fela, ég hef sýnt alla þá pappíra sem mér ber og þetta mál á sér því einhverjar aðrar rætur. Það versta er að starfsmönnum mínum er algjörlega misboðið en þeir vilja aðeins fá frið til að vinna. Flestir þeirra hafa verið hjá mér í sex ár og við erum orðnir góðir vinir allir saman og ég geri vel við þá. Tvisvar áður hefur verið gerð svona atlaga að fyrirtækinu og ekkert kom út úr því og ekkert mun kom út úr þessu heldur," segir hann að lokum.
Innlent Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Fleiri fréttir Starfsleyfi takmarkað vegna lyfjaávísana Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Sjá meira