Dansandi lífvörður drottningarinnar í þriggja vikna herfangelsi Stefán Ó. Jónsson skrifar 15. september 2014 07:39 Í myndbandinu sést hvernig maðurinn beygir sig reglulega niður og snýr sér í marga hringi. MYND/SKJÁSKOT
Lífvörður bresku hirðarinnar gæti átt yfir höfði sér 21 dags vist í herfangelsi og allt að 1000 sterlingspunda sekt, tæplega 200.000 krónur, fyrir að hafa stigið dans meðan hann stóð vörð fyrir utan Buckingham-höll í London. Myndskeið af danssporum varðarins, sem sjá má hér að neðan, fór sem eldur í sinu um netheima eftir að það rataði á Youtube í lok ágústmánaðar á þessu ári og hafa nú rúmlega 1.8 milljónir horft á myndbandið á þessari stundu. Þrátt fyrir að hafa vakið mikla lukku meðal netverja tóku hershöfðingjar ekki jafn vel í uppátæki varðarins og íhuga nú að refsa honum harkalega fyrir athæfið. Lífvörðurinn getur búist við því að þurfa að að æfa marseringar tímunum saman ásamt því að undirgangast yfirgripsmikil þrekpróf í herfangelsi í Colchester í Essex-sýslu. Þá verða honum ekki greidd laun meðan hann dvelst í fangelsinu, en laun hans telja til um 1000 sterlingspunda á tímabilinu. Í myndbandinu sést hvernig vörðurinn sem gengur nú undir nafninu „Private dancer“ meðal netverja snýr sér reglulega í hringi meðan áhorfendur hlæja og hvetja hann áfram. Þá setur hann löppina út í nokkrar sekúndur, þurrkar ryk af byssu sinni og beygir sig niður, rétt eins og að hann sé að taka eitthvað upp af jörðinni. Heimildarmenn segja að engar siðareglur séu til um dansspor konunglegu varðanna – „enda hefur enginn dirfst til að haga sér með þessum hætti svo lengi sem elstu menn muna“. Drottning var erlendis meðan dansinn átti sér stað.
Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Innlent „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Innlent Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Fleiri fréttir Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Sjá meira