Innlent

Magnús stefnir á 3.-4. sæti

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Magnús Már Guðmundsson.
Magnús Már Guðmundsson.
Magnús Már Guðmundsson borgarfulltrúi og formaður borgarstjórnarflokks Samfylkingarinnar hefur ákveðið að bjóða sig fram í 3.-4. sæti í flokksvali flokksins í Reykjavík fyrir komandi þingkosningar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Magnúsi.

Magnús býr ásamt eiginkonu sinni og tveimur börnum í Bústaðahverfi. Hann er alinn upp í Breiðholti en auk þess að vera borgarfulltrúi og formaður borgarstjórnarflokks Samfylkingarinnar er Magnús formaður ferlinefndar Reykjavíkurborgar og formaður Samfylkingarfélagsins í Reykjavík. Hann situr í velferðarráði og mannréttindaráði.

„Ungt fólk á Íslandi á að geta fundið sér starf við hæfi að loknu námi. Það á ekki að þurfa að búa í foreldrahúsum of lengi. Undanfarin ár hefur ungt fólk þurft að búa við styttra fæðingarorlof, lægri greiðslur úr fæðingarorlofssjóði og skerðingu á barnabótum. Þetta er óspennandi veruleiki og fleiri Íslendingar flytja frá Íslandi en flytja aftur heim. Við verðum að taka þessu alvarlega og snúa þessari þróun við.



Ég tilheyri samhentum hópi meirihlutans í borgarstjórn Reykjavíkur sem hefur náð góðum árangri á þessu kjörtímabili. Við höfum meðal annars ráðist í tilraunaverkefni um styttingu vinnudagsins, við komum yngri börnum inn á leikskóla og minnkum þannig bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla og uppbygging húsnæðis hefur aldrei verið meiri. Líkur eru á að sömu flokkar og starfa saman í Reykjavík geti myndað ríkisstjórn eftir næstu þingkosningar. Ég býð fram mína reynslu í því samstarfi og trúi að þessir flokkar geti staðið að nauðsynlegum umbótum.

Við þurfum mannvænna samfélag að norrænni fyrirmynd. Ójöfnuður grefur undan samfélaginu – þess vegna þarf að jafna byrðarnar, meðal annars með því lækka skatta á venjulegt fólk með þrepaskiptu skattkerfi og sanngjörnum gjöldum fyrir afnot af sameiginlegum auðlindum okkar. Bæta þar kjör venjulegs fólks, skapa fleiri störf fyrir háskólamenntaða, efla verk- og iðnnám og ráðast í aðgerðir vegna brottfalls nemenda. Löngutímabærar breytingar á stjórnarskránni, landbúnaðarkerfinu og fiskveiðistjórnarkerfinu ættu að vera í augsýn ásamt endurreisn heilbrigðiskerfisins.

Samfylkingunni er best treystandi til að koma þessum samfélagsbreytingum í gegn. Ég hef því ákveðið að gefa kost á mér í flokksvali Samfylkingarinnar í Reykjavík þar sem ég óska eftir stuðningi í 3.-4. sæti,“ segir í tilkynningu Magnúsar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×