Stöð 2 bjargar Söngkeppni framhaldsskólanna 4. apríl 2009 08:30 Pálmi Guðmundsson, sjónvarpsstjóri Stöðvar 2, segir að útsendingin verði í opinni dagskrá og því geti framhaldsskólanemendur tekið gleði sína á ný. „
Við höfum fylgst með þessum gríðarlega áhuga sem er á þessari keppni almennt og þegar ljóst var að RÚV myndi ekki hopa með sína ákvörðun var bara ákveðið að slá til enda er þetta vinsælt sjónvarpsefni," segir Pálmi Guðmundsson, sjónvarpsstjóri Stöðvar 2. Stöð 2 og AM Events, sem sjá um skipulagningu söngkeppni framhaldsskólanna, náðu í gær samkomulagi um að sýna beint frá keppninni á Akureyri í opinni dagskrá. „Þetta er bara tilhlökkunarefni fyrir okkur," segir Pálmi og bætir því að þeir setji ekki fram neinar kröfur um að lögin séu stytt eða eitthvað í þá veru. Einar Ben. hjá AM Events sagðist í samtali við Fréttablaðið vera himinlifandi yfir þessari niðurstöðu. „Ég held að ég mæli fyrir munn allra sem koma að þessari keppni að þetta eru mikil gleðitíðindi og þetta verður mun glæsilegra en mörg undanfarin ár." Eins og Fréttablaðið hefur greint frá í þessari viku ákvað RÚV að sýna ekki frá Söngkeppni framhaldsskólanna eins og gert hefur verið undanfarin ár. Þetta olli mikilli reiði meðal framhaldsskólanema og í kjölfarið var stofnuð Facebook-áskorendasíða þar sem hátt í tíu þúsund manns skoruðu á RÚV að endurskoða þessa ákvörðun sína enda væri þetta vinsælt sjónvarpsefni meðal ungra sem aldinna. Hvorki Þórhallur Gunnarsson, dagskrárstjóri RÚV, né Páll Magnússon sjónvarpsstjóri voru reiðubúnir að skipta um skoðun en til greina kom að taka eitthvert efni upp og sýna seinna. Hins vegar geta framhaldsskólanemendur nú tekið gleði sína á ný og hlakkað til 18. apríl þegar keppnin fer þar fram. - fggCoca Cola er aðalstuðningsaðili þessarar útsendingar Stöðvar 2.
Mest lesið Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Lífið Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Lífið Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Lífið Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Lífið Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Lífið Patrik hættur að gigga: „Mér líður eins og apa í búri“ Tónlist Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Lífið Hvað veistu um… skák? Lífið „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Lífið Skímó á skikkanlegum tíma fyrir ömmur og afa Tónlist Fleiri fréttir Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Safna fjármagni með múrmeldýrum á OnlyFans Gurrý komin aftur á markaðinn Förðunardrottning selur á Framnesvegi „Heimurinn er betur staddur með Höllu sem forseta“ Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eignuðust dreng Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Carly Simons lærir að lifa með Parkinson Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Seyfried syrgir Finn sinn Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Emma Roberts gengin í það heilaga „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Sjá meira