Léttskýjað og létt lund um páska 4. apríl 2009 06:30 Sigurður Þ. Ragnarsson
Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur segir von á hæglátu páskaveðri en þó ekki sérlega hlýju þar sem við siglum í næstu viku í kaldara loft eftir að hafa notið vorviðrisdaga. „En hér sunnanlands verður meira að segja hægt að næla sér í sólbrúnku ef einlægur vilji er fyrir hendi," segir hann kankvís. Aðeins dregur fyrir sólu á suðurhluta landsins á laugardag fyrir páska en páskavikan verður nokkuð þungbúnari norðanlands. Á suðurhluta landsins ætti hitastigið, að sögn Sigurðar, að haldast fyrir ofan frostmark en fer líklegast lítillega undir það norðanlands. „Það verður sem sagt hæglætisveður en það mikilvægasta er að geðslag landsmanna verður með afbrigðum gott," segir hann. „Þannig er mál með vexti að loftþrýstingurinn verður hár eða yfir þúsund millibörum." Sigurður hefur safnað upplýsingum um þetta og segir það alveg ljóst að bein tengsl séu á milli loftþrýstings og lundarfars fólks. „Þegar loftþrýstingur er fallandi líður fólki verst, þá er dumbungur í veðri og lundarfari. Fólk fær þá jafnvel hausverk og önnur óskemmtilegheit. En þegar hann er hár er stutt í brosið og góða skapið. Það verður því brosað breitt þessa helgina. Geðvísitalan er há, og ekki veitir af í þessu ástandi," segir hann.- jse
Mest lesið Bera kennsl á mann fimmtíu árum eftir að hann lét sig hverfa Erlent „Mjög miður að við séum komin á þennan stað“ Innlent Lögregla lýsir eftir vitnum að mannaferðum við Stardal Innlent Syrgja fallið kornabarn: „Það er ekkert plan, engin lausn“ Innlent Einn fluttur á Landspítalann frá Fjallabaki Innlent Líklega snúin staða sama hvernig fer í Noregi Erlent Tölvuleikjaspilandi táningur tekinn í dýrlingatölu Erlent Gleði og samvera í 60 plús leikfimi á Selfossi Innlent Engin slys á fólki þegar hjólhýsi valt Innlent Brimborg og Askja innkalla bifreiðar Bílar Fleiri fréttir „Mjög miður að við séum komin á þennan stað“ Gleði og samvera í 60 plús leikfimi á Selfossi Syrgja fallið kornabarn: „Það er ekkert plan, engin lausn“ Engin slys á fólki þegar hjólhýsi valt Syrgja fallið kornabarn og fyrsti þúsaldardýrlingurinn Einn fluttur á Landspítalann frá Fjallabaki Kröftug mótmæli brjóti ekki gegn málfrelsi Hringveginum lokað vegna umferðarslyss Þyrlan kölluð út á mesta forgangi Jákvæð gagnvart nýrri atvinnustefnu Frábær og vel heppnuð Ljósanótt Möguleg slit á fríverslunarsamningi við Ísrael tekin fyrir Skoða að rifta fríverslunarsamningi við Ísrael Labubu bangsar ekki lengur velkomnir í Ísaksskóla Fangageymslur fullar eftir erilsama nótt Aðgerðir vegna Gasa, málfrelsi á Íslandi og ný atvinnustefna Ákærðir vegna fölsuðu taflanna tuttugu þúsund „Vona bara að hún grípi til raunverulegra aðgerða sem bíta“ Korn ræktað á um fjögur þúsund hekturum Veltir fyrir sér hvort íslensk íþróttafélög verði af milljörðum Handtekinn undir áhrifum með tvö börn í bílnum Fjölmenn mótmæli og skortur á íslenskukunnáttu þrátt fyrir doktorsnám Ákærðir fyrir hópnauðgun gegn ólögráða stúlku Gullkistan opnuð á Vestfjörðum Sóttu slasaðan ökumann við Surtshelli Gríðarlegur fjöldi á mótmælunum Þjóð gegn þjóðarmorði Tæpir sextíu þúsund fermetrar í eigu ríkisins standa tómir Kennir íslensku en fær ekki ríkisborgararétt að óbreyttu Tvöföldun erlendra fanga á fimm árum: „Þetta er auðvitað gríðarlega hátt hlutfall“ Nöfn myrtra barna verða lesin upp í sjö klukkustundir Sjá meira