Sjálfsmark tryggði Real Madrid nauman sigur

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Sigurmarkinu fagnað.
Sigurmarkinu fagnað. vísir/Getty

Real Madrid vann mikilvægan en nauman sigur á Sevilla í spænsku úrvalsdeildinni í dag. Bæði lið mættu særð til leiks eftir að hafa fengið skell í Meistaradeild Evrópu í vikunni.

Leikurinn var fremur tíðindalítill en bæði lið eru rétt fyrir aftan efstu lið deildarinnar í töflunni.

Eina mark leiksins kom snemma í síðari hálfleik þegar Yassine Bounou, markvörður Sevilla, varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark þegar hann missti boltann úr höndunum eftir marktilraun Vinicius.

Real Madrid lyfti sér þar með upp í 3.sæti deildarinnar og er fjórum stigum frá toppliði Real Sociedad.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira