Messi-lausir Barca menn tryggðu sér sæti í sextán liða úrslitunum

Ísak Hallmundarson skrifar
Leikmenn Barcelona fagna marki í kvöld.
Leikmenn Barcelona fagna marki í kvöld. getty/Stanislav Vedmid

Barcelona gaf Lionel Messi frí í kvöld þegar liðið heimsótti Dynamo Kiev í Úkraínu en með 4-0 sigri tryggðu Börsungar sér sæti í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Staðan var 0-0 í hálfleik en á 52. mínútu skoraði Sergino Dest eftir stoðsendingu frá Martin Braithwaite. Braithwaite var síðan sjálfur á ferðinni þegar hann skoraði fimm mínútum síðar og bætti svo við öðru marki sínu og þriðja marki Barcelona á 70. mínútu, þegar hann skoraði af vítapunktinum. 

Antoine Griezmann innsiglaði síðan sigurinn í uppbótartíma og Barcelona á leið í 16-liða úrslit keppninnar.

Í sama riðli lenti Juventus í erfiðleikum á heimavelli á móti ungverska liðinu Ferencvaros.

Myrto Uzuni kom Ferencvaros óvænt yfir á 19. mínútu leiksins. Það var síðan enginn annar en Cristiano Ronaldo sem jafnaði metin á 35. mínútu og staðan 1-1 í hálfleik.

Juventus þurfti að bíða eftir sigurmarkinu þar til í uppbótartíma en það var Alvaro Morata sem skoraði sigurmarkið og 2-1 sigur Juventus staðreynd. Með sigrinum er Juventus, líkt og Barcelona, búið að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Dortmund og Lazio unnu góða sigra í F-riðli. Dortmund vann Club Brugge 3-0 þar sem Erling Haaland skoraði tvö mörk og Jadon Sancho eitt mark. Á sama tíma vann Lazio rússneska liðið Zenit 3-1, Ciro Immobile skoraði tvö mörk fyrir Lazio og Marco Parolo það þriðja. 

Dortmund og Lazio eru í góðum málum í riðlinum þegar tvær umferðir eru eftir, Dortmund í fyrsta sæti með níu stig og Lazio í öðru sæti með átta stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira