Ronaldo bjargaði stigi fyrir Juve í Róm Arnar Geir Halldórsson skrifar 27. september 2020 20:40 Cristiano Ronaldo. vísir/Getty Juventus heimsótti AS Roma í stórleik dagsins í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Eftir markalausan fyrsta hálftíma leiksins fór að færast fjör í leikinn. Jordan Veretout kom Roma yfir á 31.mínútu og Cristiano Ronaldo jafnaði metin með marki úr vítaspyrnu á 44.mínútu. Veretout svaraði um hæl og sá til þess að Rómverjar leiddu í leikhléi, 2-1. Eftir klukkutíma leik vænkaðist hagur heimamanna til muna þegar Adrien Rabiot, miðjumaður Juventus, fékk að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt. Einum fleiri tókst Roma ekki að halda forystunni því Cristiano Ronaldo var ekki hættur og jafnaði metin með kraftmiklu skallamarki á 69.mínútu. Lokatölur 2-2 í skemmtilegum leik. Ítalski boltinn
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Breiðablik 106-94 | Toppliðið sýndi klærnar nógu mikið gegn Blikum Körfubolti
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Breiðablik 106-94 | Toppliðið sýndi klærnar nógu mikið gegn Blikum Körfubolti