Innlent

Saman­lagt tjón RA­RIK og Lands­nets tæpar 800 milljónir króna

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Fjöldi rafmagnsstaura brotnaði á Norðurlandi í óveðrinu sem þar gekk yfir í desember.
Fjöldi rafmagnsstaura brotnaði á Norðurlandi í óveðrinu sem þar gekk yfir í desember. vísir/egill

Tjón RARIK vegna annars vegar óveðursins í desember og hins vegar óveðursins síðastliðinn föstudag nemur samtals um 300 milljónum króna.

Tjón Landsnets vegna óveðursins í desember hleypur á 350 til 400 milljónum króna en tjón fyrirtækisins vegna lægðagangs og storma í janúar og febrúar nemur alls um 80 milljónum króna. Samanlagt tjón fyrirtækjanna nemur því um 780 milljónum króna.

Á Sprengisandi á Bylgjunni um helgina ræddu þeir Nils Gústavsson, framkvæmdastjóri framkvæmda- og rekstrarsviðs Landsnets, og Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK, það tjón sem fyrirtækin hafa orðið fyrir í lægðum vetrarins.

Eins og flestum er eflaust í fersku minni gekk mikið óveður yfir landið 10. og 11. desember síðastliðinn sem olli miklu tjóni á raforkukerfinu. Fjöldi heimila og fyrirtækja voru þannig rafmagnslaus dögum saman. Tjón fyrirtækjanna vegna veðursins í desember er töluvert.

„Hjá Landsneti erum við búin að skjóta á það. Viðgerðarkostnaður og með díselvélakeyrslu þá er það svona á bilinu 350 til 400 milljónir,“ sagði Nils.

„Hjá okkur voru þetta svona um 200 milljónir. En að hluta til erum við að fresta því að fara í viðgerðir og erum að flýta fjárfestingum á þessu ári. Það var ákveðið að flýta fjárfestingum á Norðurlandi um 230 milljónir og taka þá stóran hluta af því sem fór verst í desember í jarðstrengi. Það er reyndar búið að leggja eitthvað, við munum halda áfram að leggja eftir því sem hægt er í vetur og síðan í sumar,“ sagði Tryggvi.

Heildartjón RARIK og Landsnets vegna óveðursins í desember er því um 600 milljónir króna.

Í óveðrinu sem varð síðan síðastliðinn föstudag var tjón RARIK tæplega 100 milljónir króna að því er Helga Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs hjá RARIK, greindi frá í samtali við RÚV.

Alls urðu 5.600 heimili og fyrirtæki rafmagnslaus en um 100 rafmagnsstaurar brotnuðu í storminum. Til samanburðar brotnuðu 140 staurar RARIK í óveðrinu í desember.

Vísir sendi fyrirspurn til Landsnets og spurði út í tjón fyrirtækisins vegna óveðursins síðastliðinn föstudag. Í svari frá Steinunni Þorsteinsdóttur, upplýsingafulltrúa Landsnets, kemur fram að búið sé að taka kostnaðinn vegna viðgerða á flutningsvirkjum gróflega saman fyrir bæði janúar og febrúar. Kostnaðurinn í janúar var 30 milljónir króna og nú í febrúar er hann kominn upp í 50 milljónir króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×