Messi og félagar kláruðu Napoli og mæta Bayern

Anton Ingi Leifsson skrifar
Lionel Messi fagnar í kvöld.
Lionel Messi fagnar í kvöld. vísir/getty

Barcelona er komið áfram í átta liða úrslitin eftir 3-1 sigur á Napoli í síðari leik liðanna í kvöld. Fyrri leiknum lauk með 1-1 jafntefli.

Börsungar gerðu út um leikinn í fyrri hálfleiknum í kvöld. Clement Lenglet skoraði fyrsta markið á 10. mínútu með skalla úr hornspyrnu.

Þrettán mínútum síðar skoraði Lionel Messi með ansi laglegu skoti og Messi virtist vera skora annað mark sitt sjö mínútum síðar en það var dæmt af eftir VARsjána.

Luis Suarez náði þó að koma Barcelona í 3-0 fyrir hlé er hann skoraði úr vítaspyrnu eftir að Kalidou Koulibaly braut á Lionel Messi.

Ekki var öll dramatíkin úti í fyrri hálfleik því strax í næstu sókn var önnur vítaspyrna dæmd. Lorenzo Insigne steig á punktinn og skoraði.

Napoli náði að koma boltanum í netið hjá Barcelona í síðari hálfleik en markið var dæmt af vegna rangstöðu.

Börsungar eru því komnir áfram í átta liða úrslitin þar sem þeir mæta Bayern Munchen.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira