Vítaspyrnumark tryggði Lyon farseðil til Portúgal

Anton Ingi Leifsson skrifar
Leikmenn Lyon fagna innilega eftir leik.
Leikmenn Lyon fagna innilega eftir leik. getty/Valerio Pennicino

Franska liðið Lyon sló Ítalíumeistara Juventus úr leik í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Lyon vann fyrri leikinn í Frakklandi 1-0 og þýddi það að ef liðið myndi skora í dag þyrfti Juventus að skora þrjú mörk.

Memphis Depay kom Lyon yfir á 12. mínútu með marki úr vítaspyrnu og setti þannig mikla pressu á Ítalíumeistaranna.

Cristiano Ronaldo náði að jafna metin á 43. mínútu þegar það var komið að Juventus að fá vítaspyrnu. Ronaldo skoraði af öryggi á punktinum og staðan í hálfleik 1-1.

Á 60. mínútu kom Portúgalinn Juve yfir með öðru marki sínu, frábært mark með skoti fyrir utan teig. Flestir bjuggust við því að það væri tímaspursmál hvenær þeir ítölsku myndu setja þriðja markið og klára leikinn en allt kom fyrir ekki. Lyon vörnin hélt út til leiksloka og lokatölur í þessum leik 2-1.

Úrslitin þýða að Lyon fer áfram á útivallarmarki og mætir Manchester City í 8-liða úrslitum í Portúgal. Juventus veldur enn og aftur vonbrigðum í Meistaradeildinni en liðið hefur ekki unnið Meistaradeildina síðan árið 1996.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira