Ehud Olmert stjórnaði sínum fyrsta ríkisstjórnarfundi í morgun 8. janúar 2006 12:45 Mynd/AP
Ehud Olmert, starfandi forsætisráðherra Ísrael, stjórnaði sínum fyrsta ríkisstjórnarfundi í morgun. Ísraelskir fjölmiðlar fullyrða að helstu samstarfsmenn Ariel Sharons vilji að Olmert taki við forystu í Kadíma flokknum. Læknar Sharons ákveða í dag hvort hættandi sé á að vekja hann í kvöld eins og stefnt var að. Honum hefur verið haldið sofandi síðan hann fékk alvarlegt heilablóðfall á miðvikudagskvöldið og ekki verður hægt að meta ástand leiðtogans fyrr en hann vaknar. Einn af skurðlæknum Sharons segir að líklega muni hann lifa af, en óvíst sé hvort hann muni nokkru sinni geta talað eða skilið annað fólk. Ehud Olmert, sem hefur tekið við starfi Sharons til bráðabirgða, hélt sinn fyrsta ríkisstjórnarfund í morgun. Þar sagðist hann ætla að stjórna málum eins og Sharon hefði viljað. Eitt af hans fyrstu verkum verður að ákveða hvort Palestínumenn í austurhluta Jerúsalem fái að kjósa í þingkosningunum í Palestínu í lok mánaðarins. Leyfi hann það ekki, gæti það sett kosningarnar í uppnám. Ísraelskir fjölmiðlar segja að helstu samstarfsmenn Sharons vilji að Olmert taki við forystu í Kadíma flokknum og leiði hann í kosningunum í Ísrael í lok mars. Shimon Peres, fyrrverandi forsætisráðherra og einn af aðalmönnunum á bakvið friðarferlið í Osló, sagðist í morgun styðja Olmert til forystu í Kadíma. Peres sem gekk í Kadíma fyrir nokkrum vikum vill ekki staðfesta að hann verði áfram í flokknum eftir brotthvarf Sharons. Verði hann áfram í stjórnmálum verður það líklega í Kadíma, því Peres útilokaði í morgun að hann myndi aftur ganga í verkamannaflokkinn. Innanbúðarmenn í Kadíma segja að Peres sé einn af fimm mönnum sem flokksmenn vilji í ráðherraembætti eftir kosningarnar.
Mest lesið Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Innlent Fleiri fréttir Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Sjá meira