Sharon vakinn á morgun. 8. janúar 2006 12:11
Nú rétt í þessu tilkynntu læknar Ariels Sharon að hann yrði vakinn á morgun ef allt gengi að áætlun. Honum hefur verið haldið sofandi síðan hann fékk alvarlegt heilablóðfall á miðvikudagskvöldið og ekki verður hægt að meta ástand leiðtogans fyrr en hann vaknar. Honum hefur verið haldið sofandi síðan hann fékk alvarlegt heilablóðfall á miðvikudagskvöldið og ekki verður hægt að meta ástand leiðtogans fyrr en hann vaknar. Einn af skurðlæknum Sharons segir að líklega muni hann lifa af, en óvíst sé hvort hann muni nokkru sinni geta talað eða skilið annað fólk. Ehud Olmert, sem hefur tekið við starfi Sharons til bráðabirgða, hélt sinn fyrsta ríkisstjórnarfund í morgun. Þar sagðist hann ætla að stjórna málum eins og Sharon hefði viljað. Eitt af hans fyrstu verkum verður að ákveða hvort Palestínumenn í austurhluta Jerúsalem fái að kjósa í þingkosningunum í Palestínu í lok mánaðarins. Leyfi hann það ekki, gæti það sett kosningarnar í uppnám. Ísraelskir fjölmiðlar segja að helstu samstarfsmenn Sharons vilji að Olmert taki við forystu í Kadíma flokknum og leiði hann í kosningunum í Ísrael í lok mars. Shimon Peres, fyrrverandi forsætisráðherra og einn af aðalmönnunum á bakvið friðarferlið í Osló, sagðist í morgun styðja Olmert til forystu í Kadíma. Peres sem gekk í Kadíma fyrir nokkrum vikum vill ekki staðfesta að hann verði áfram í flokknum eftir brotthvarf Sharons. Verði hann áfram í stjórnmálum verður það líklega í Kadíma, því Peres útilokaði í morgun að hann myndi aftur ganga í verkamannaflokkinn. Innanbúðarmenn í Kadíma segja að Peres sé einn af fimm mönnum sem flokksmenn vilji í ráðherraembætti eftir kosningarnar.
Erlent Fréttir Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Innlent Fleiri fréttir Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Sjá meira