Milljarðamæringi hent út vegna íslensks plötusnúðs 22. desember 2008 08:30 Tónlistin sem Erling lék fyrir gesti á Bungalow 8 mæltist vel fyrir hjá öllum nema einum; honum var líka hent út. Fréttablaðið/GVA
Íslenski plötusnúðurinn AC Bananas, betur þekktur sem Erling Egilsson úr Steed Lord, kom heldur betur við sögu í hálfgerðum hópslagsmálum sem brutust út á þotuliðsstaðnum Bungalow 8 í London. Joseph Corre, einum þekktasta mannréttindafrömuði Bretlands, var hent út af skemmtistaðnum Bungalow 8 í London á föstudagskvöldið. Ástæða þess var að hann heimtaði að önnur gerð af tónlist yrði spiluð. Plötusnúðurinn sem var ábyrgur fyrir tónlistarvalinu var Erling Egilsson, AC Bananas úr hljómsveitinni Steed Lord. Frá þessu er greint í breska blaðinu Daily Mail. Málið þykir mikið hneyksli enda ekki á hverjum degi sem kemur til ryskinga milli dyravarða og milljarðarmæringa á svona stað. Umræddur maður, Joseph Corre, er sonur tískudrottningarinnar Vivianne Westwood. Corre auðgaðist mjög þegar hann seldi undirfatalínu sína fyrir 60 milljónir punda eða tíu milljarða íslenskra króna. Corre mætti á staðinn með svipaðan hatt og Malcolm McDowell skreytti sig með í Clockwork Orange. Hann hafði fengið sér aðeins í tána og sat með félögum sínum á efri hæð staðarins. Corre var ekki par sáttur við tónlistina sem Elli bauð upp á. Aðrir gestir kvörtuðu ekki og virtust skemmta sér konunglega. Corre áleit sig sjálfskipaðan tónlistarstjóra og fannst besta ráðið til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri að öskra á Erling. Vildi Corre fá að heyra rokk og ról að sögn Daily Mail. Þetta fór heldur illa ofan í aðra gesti staðarins og báðu dyraverðir Corre um að lækka róminn eða fara. Hann hlýddi engum fyrirskipunum og tók að öskra enn hærra. Í kjölfarið var ákveðið að henda honum út og kom til nokkurra slagsmála þar sem Corre virtist hafa verið kýldur, beint á nefið. Drykkklanga stund tók að koma Corre útaf staðnum, alblóðugum, en málið þykir mikið hneyksli meðal þotuliðsins í Bretlandi enda ekki á hverjum degi sem einhverjum er hent út af Bungalow 8. „Þetta gerist aldrei, Bungalow er staður fyrir stjörnur í hæsta gæðaflokki,“ sagði einn fastagestur við Daily Mail. Corre þekkir nóg af slíku fólki en hann er besti vinur Kate Moss og sir Eltons John. Hann er einhver öflugasti mannréttindafrömuður Breta og berst fyrir lokun Guantanamo-fangelsisins á Kúbu. Af Erling er það hins vegar að segja að hann hélt bara áfram og lék fyrir gesti langt fram á nótt.
Mest lesið „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Lífið Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Lífið Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Lífið „Ég vil ekki líkjast öllum öðrum“ Tíska og hönnun „Við teljum að þetta verði sögulegir tónleikar“ Tónlist Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Lífið „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Lífið Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest Lífið Fleiri fréttir Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Sjá meira