De Niro-veggspjald gagnrýnt 22. desember 2008 07:00 Staðsetning plakatsins úr kvikmyndinni Righteous Kill þótti orka tvímælis en það var sett upp á þeim stað þar sem Jean Charles de Menezes var drepinn 2005.
Siðanefnd samtaka auglýsenda í Bretlandi hefur úrskurðað að staðsetning kvikmyndaplakats nýjustu kvikmyndar Roberts De Niro og Al Pacino, Righteous Kill, hafi verið óviðeigandi á sínum tíma. Plakatinu var komið fyrir á Stockwell-lestastöðinni á meðan rannsókn fór fram á máli Jean Charles de Menezes sem myrtur var af breskum lögregluþjónum skömmu eftir hryðjuverkaárásirnar í London í júlí. Það sem fór mest fyrir brjóstið á samtökum auglýsenda var textabrotið: „There‘s nothing wrong with a little shooting as long as the right people get shot,“ sem myndi útleggjast á íslensku: „Það er ekkert að því að skjóta einhvern, svo lengi sem það er réttur maður sem verður fyrir skotinu.“ Í úrskurðinum kemur fram að hvergi er hvatt til ofbeldis á plakatinu en að aðstandendur myndarinnar hefðu mátt gera sér grein fyrir því að staðsetningin gæti orkað tvímælis í ljósi atburðanna. Hins vegar væri engin ástæða til þess að gera neitt frekar í málinu. Tvær aðrar kvikmyndir voru teknar fyrir hjá siðanefndinni. Annars vegar glæpamyndin Rock N Rolla en plakat þeirrar myndar þótti hefja byssueign upp til skýjanna og hins vegar myndbrot úr kvikmyndinni Bangkok Dangerous með Nicolas Cage en það þótti of ofbeldisfullt til að vera sýnt fyrir klukkan níu á kvöldin. Siðanefndin hafnaði fyrri kröfunni en féllst á þá seinni og verður því myndbrot Bangkok Dangerous sýnt seinna á kvöldin í bresku sjónvarpi.
Mest lesið „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Lífið Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Lífið „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Lífið Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Lífið „Ég vil ekki líkjast öllum öðrum“ Tíska og hönnun „Við teljum að þetta verði sögulegir tónleikar“ Tónlist Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Lífið Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest Lífið Fleiri fréttir Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum Sjá meira