Samfylkingin sökuð um loddaraskap 22. desember 2008 12:01
Þingflokksformaður Vinstri grænna sakaði Samfylkinguna um loddaraleik í umræðum um eftirlaun æðstu ráðamanna á Alþingi í morgun. Breytingatillaga stjórnarandstöðu um að ráðamenn njóti sömu lífeyriskjara og aðrir opinberir starfsmenn, var felld. Greidd voru atkvæði um frumvarp ríkisstjórnarinnar um breytingar á lögum um eftirlaun forseta Íslands, þingmanna, ráðherra og hæstaréttardómara að lokinni annarri umræðu á Alþingi í morgun. Stjórnarandstaðan stóð saman að breytingartillögu við fyrstu grein frumvarpsins, um að æðstu ráðamenn nytu sömu lífeyrisréttinda og aðrir opinberir starfsmenn, en sú tillaga var felld með 39 atkvæðum gegn fimmtán. Ögmundur Jónasson þingflokksformaður Vinstri grænna var fyrsti flutningsmaður breytingatillögunnar. Hann sagði frumvarp ríkisstjórnarinnar ekki afnema sérréttindi æðstu ráðamanna. Ágúst Ólafur Ágústsson varaformaður Samfylkingarinnar sagði frumvarp ríkisstjórnarinnar afnema sérreglur um kjör forsætisráðherra, aldursmörk til töku lífeyris væru hækkuð og lífeyrisskuldbindingar gagnvart ráðherrum væru lækkuð um 60 prósent. Pétur Blöndal þingmaður Sjálfstæðisflokksins sagði breytingatillögu stjórnarandstöðunnar fela í sér að að æðstu ráðamönnum yrðu tryggð sérréttindi opinberra starfsmanna, umfram lífeyrisréttindi á almennum vinnumarkaði og lagði sjálfur til að þingmönnum yrði gert að vera í almennu lífeyrissjóðunum. Siv Friðleifsdóttir ásamt öðrum þingmönnum Framsóknarflokkskins vildi hins vegar að þingmenn fengju sömu kjör og aðrir opinberir starfsmenn. Eftirlaunafrumvarpið verður væntanlega að lögum seinna í dag þegar það kemur til lokaumræðu á Alþingi.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Fleiri fréttir Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Sjá meira