Erlent

Flytja fólk í neyðarskýli undan fellibylnum Dolly

Stjórnvöld í Mexíkó eru nú að undirbúa flutning á 23.000 íbúum við Mexíkóflóann í neyðarskýli áður en að fellibylurinn Dolly skellur á svæðinu.

Og yfirvöld í Texas hafa gefið úr fellibylsaðvörun á svæðinu milli Brownsville og Corpus Christie. Jafnframt hafa íbúar við Rio Grande ánna verið beðnir um að flytja sig á brott.

Dolly mun skella á svæðinu undir vikulokin og talið er að hann mun valda miklum flóðum og aurskriðum þar sem hann fer yfir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×