Bestu liðin heima væru best í Belgíu 3. mars 2007 06:30
Landsliðsmarkvörðurinn Þóra B. Helgadóttir leikur í dag sinn fyrsta leik með belgíska úrvalsdeildarliðinu Oud-Heverlee Leuven þegar það heimsækir lið KFC Lentezon Beerse. „Leuven er með ágætislið," sagði Þóra við Fréttablaðið en liðið er sem stendur í sjötta sæti deildarinnar. „Það hefur reyndar gengið frekar illa upp á síðkastið en liðið var í þriðja sæti fyrr á tímabilinu." Aðeins fjögur stig er í liðið í þriðja sætið og því mikil barátta um það sæti. KFC Rapide Wezemaal er í efsta sæti deildarinnar með fullt hús stiga eftir sautján leiki en Anderlecht er í öðru sæti, sex stigum á eftir. Beerse, andstæðingar Leuven í dag, eru í ellefta sæti deildarinnar. Alls eru fjórtán lið í deildinni og hófst keppnin í september og lýkur um miðjan maímánuð. Hún segir getumuninn á belgísku úrvalsdeildinni og þeirri íslensku ekki vera það mikinn. „Ég held að bestu liðin heima væru best hér í Belgíu. Á móti kemur þó að breiddin er meiri hér." Hún segir að sér hafi verið afar vel tekið af leikmönnum liðsins. „Það kom mér reyndar á óvart að ég fékk strax að spila. Ég hef aðeins verið hér í tvær vikur og leikið einn leik með varaliðinu." Þóra er í vinnu í Brussel þar sem hún býr, en Leuven er í aðeins 20 kílómetra fjarlægð. Hún segir að það sé óvíst hvenær hún komi heim á nýjan leik. „Það er alveg óráðið. Ég mun ekki spila heima í sumar en held auðvitað áfram með landsliðinu," sagði hún en hún fer með liðinu í æfingabúðir í Algarve nú á mánudaginn. „Þetta hefur verið skemmtileg reynsla. Ég er alltaf að koma mér betur fyrir og hlakka til að spila í dag." Þóra er samningsbundin Breiðabliki en var lánuð til belgíska liðsins nú í haust þegar ljóst var að hún myndi flytja þangað vegna vinnu sinnar.
Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn „Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ Fótbolti „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Íslenski boltinn Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti „Stjörnuhrap“ í frönsku miðlunum Fótbolti Fleiri fréttir Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn ÍBV - Valur 2-1 | Ferskir Frakkar, eitraðar Eyjakonur og veiklulegur Valur „Stjörnuhrap“ í frönsku miðlunum FIFA rukkar tíu þúsund krónur fyrir að mæta á blaðamannafund Breiðablik - Víkingur | Toppsætið í boði Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Skoða markaðinn til að þurfa ekki að gefa fleiri leiki Enskur úrslitaleikur gæti haft áhrif á Opna breska „Dramatískasta viðureignin í alþjóðafótboltanum“ Bauð miðalausum stuðningsmanni á undanúrslit heimsmeistaramótsins Balogun viðurkennir að inngrip Trumps hafi haft truflandi áhrif Spánverjar jöfnuðu heimsmet og geta slegið það í úrslitaleiknum „Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Maður dagsins á HM: Byrjaði hjá Barcelona en nú kominn til Real Madrid Sjáðu Stjörnuna stimpla sig í titilslag og Hamlett koma Fram af botninum Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Landsliðsmiðverðirnir skiptu báðir um lið í dag „Ekkert af þessu gekk og þá líður manni ömurlega“ „Hvað viljið þið að Jude Bellingham segi?“ „Minn stærsti draumur“ Uppgjörið: Þróttur-Fram 0-1 | Unnu aftur og komust af botninum Spánverjar í úrslitaleikinn eftir sannfærandi sigur á Frökkum Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Sjá meira