Johnson: Kom ekki vel fram við kærustuna mína og dóttur Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. febrúar 2016 17:08 Adam Johnson fyrir utan réttarsalinn í dag. Vísir/Getty
Adam Johnson, knattspyrnumaðurinn sem var kærður fyrir kynferðislegt athæfi með barni, bar í dag vitni í dómssal. Johnson var áður leikmaður enska úrvalsdeildarfélagsins Sunderland en hefur nú verið rekinn frá félaginu. Réttarhöldin hófust í síðustu viku og lýsti þá stúlkan, sem var fimmtán ára þegar meint brot áttu sér stað, samskiptum þeirra sem að hennar sögn fólu í sér kynferðislega hegðun þeirra á milli.Sjá einnig: Fórnarlamb Johnson vildi vernda hann Johnson hefur gengist við því að hafa vingast við stúlkuna í þeim tilgangi að koma á kynferðislegu sambandi við hana sem og einni af þremur kærum um kynferðislegt athæfi með barni. Hann neitar sök í hinum tveimur kæruliðunum. „Ég kom ekki vel fram við kærustu mína og dóttur,“ viðurkenndi hann í dag en kærasta hans, Stacey Flounders, hefur staðið við hlið hans á meðan réttarhöldunum hefur staðið.Stacey Flounders, kærasta Johnson.Vísir/GettyVildi áritaðar fótboltatreyjur Hann játaði að hafa kysst stúlkuna og viðurkennir að hann hafi vitað að það væri lögbrot. En hann neitar að hann hafi ætlað sér að hafa kynmök með stúlkunni. Johnson staðfestir að hann hafi fengið vinabeiðni frá stúlkunni á Facebook sem hann samþykkti. Hann skiptist svo á símanúmerum við hana því hún hafði beðið hann um að áritaðar fótboltatreyjur.Sjá einnig: Stúlkan segist „algjörlega hata“ Adam Johnson Hann segir að í fyrstu hafi samband þeirra verið „platónskt“ og að hún hefði reglulega komið að máli við hann og beðið hann um áritaðar treyjur. Engu að síður bað hann um að þau myndu hittast þegar búið væri að dimma svo að síður yrði borið kennsl á hann auk þess sem að hann bað stúlkuna um að eyða skilaboðum sem hann hafði sent henni. Hann segir að það hafi verið ýmsar ástæður fyrir því síðarnefnda. „Ég átti kærustu, ég vissi hvað væri sagt ef það væri vitað að ég væri að tala við stúlku á þessum aldri og ég vildi ekki að hún myndi segja vinum sínum sem myndu svo koma til mín og biðja um treyjur,“ sagði Johnson í vitnisburði sínum.Johnson í leik með Sunderland.Vísir/GettySendi fleiri konum skilaboð Johnson las þó yfirlýsingu áður en vitnaleiðslurnar hófust þar sem hann gekkst við hegðun sinni, sem hann sagði að hefði verið heimskuleg, og bað hann stúlkuna afsökunar. „Hún er barn og hefði átt að vera örugg í návist minni.“ Hann viðurkennir að sum skilaboðanna sem hann sendi mætti túlka sem daður. Hann segist skammast sín fyrir þau og að honum hafi leiðst. Enn fremur viðurkenndi hann að hafa sent fleiri konum skilaboð.Sjá einnig: Johnson bað um nektarmynd af stúlkunni Johnson var einnig spurður af hverju hann hafi verið að leita sér upplýsinga um netinu um hvenær einstaklingi er heimilt samkvæmt lögum að stunda kynlíf en hann segir að það hafi tengst umræðum sem hann átti við liðsfélaga sína hjá Sunderland og væri algjörlega ótengt þessu máli.
Enski boltinn Tengdar fréttir Johnson bað um nektarmynd af stúlkunni Vinkona stúlkunnar sem var dregin á tálar af Adam Johnson bar vitni fyrir rétti í gær. 18. febrúar 2016 09:30 Sunderland rekur Johnson Enska úrvalsdeildarfélagið Sunderland hefur rekið Adam Johnson en hann hefur játað á sig kynferðisbrot gegn barni. 11. febrúar 2016 20:18 Stúlkan segist „algjörlega hata“ Adam Johnson Réttarhöldin í máli knattspyrnumannsins Adam Johnson halda áfram. 17. febrúar 2016 11:30 Fórnarlamb Johnson vildi vernda hann Knattspyrnumanninum Adam Johnson er gefið að sök að hafa stundað kynferðislegt athæfi með fimmtán ára stúlku, sem bar vitni í réttarhöldunum í gær. 16. febrúar 2016 11:15 Johnson játar kynferðisbrot gegn barni Adam Johnson, leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Sunderland, hefur játað fyrir rétti að hafa brotið kynferðislega gegn stúlku undir samræðisaldri. 10. febrúar 2016 13:18 Johnson var átrúnaðargoð stúlkunnar sem hann misnotaði Stúlkan sem Adam Johnson, fyrrverandi leikmaður Sunderland, braut kynferðislega gegn var mikill aðdáandi fótboltamannsins. Þetta kom fram fyrir rétti í dag. 12. febrúar 2016 14:26 Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Uppgjörið: KR - Víkingur R. 1-2 | Fimm rauð og Víkingar meistarar Íslenski boltinn Þróttur R. - Fylkir 1-0 | Þróttarar upp í Bestu deild eftir tíu ára bið Íslenski boltinn Læti í göngunum eftir leik Íslenski boltinn „Ég ýtti bara aðeins við honum“ Íslenski boltinn „Hef engan smekk fyrir því hvernig þeir haga sér“ Íslenski boltinn Steindi gleymdi klukkunni og teikar aðra keppendur Sport Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Golf Hættir hjá Nike og tekur óvænt skref Fótbolti Skytturnar skotnar í kaf í Brighton Enski boltinn Fleiri fréttir Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Barry sendi Everton upp í fimmta sæti og Newcastle vann Hull Skytturnar skotnar í kaf í Brighton Tottenham sökk dýpra og enn án sigurs í fimm leikjum Fjórföld löggæsla fyrir harðasta ríg Englands JJ Gabriel mættur til Barcelona Brentford taplausir eftir sigur á bitlausu liði Chelsea Richarlison hafnaði Vasco da Gama: „Við reyndum allt“ Flestir Íslendingar halda með Liverpool Ngumoha, Palmer og Alexander-Arnold í hópnum sem mætir Spáni Isak bjartsýnn: „Myndi aldrei hugsa þannig“ Ungstirni Manchester City tryggðu liðinu stórsigur Tætti í sig fulltrúa ungstirnisins: „Hvernig eruð þið að hugsa um þennan strák?“ Boehly selur og kveður Chelsea Sunderland vann í fyrsta Evrópuleiknum síðan 1973 Enn eitt áfallið fyrir Manchester United Stórlaxarnir á eftir vonarstjörnu Manchester United sem vill burt Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Vonarstjarna Man. Utd vill burt frá félaginu Raheem Sterling játar sök Sjáðu veislu Leeds og markið sem gerði framherjann brjálaðan „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Milner aftur til Liverpool Leedsarar léku sér að Newcastle VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Goðsögn hjá West Ham fallin frá „Eins og þeir séu hræddir við að vinna“ Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Sjá meira
Johnson bað um nektarmynd af stúlkunni Vinkona stúlkunnar sem var dregin á tálar af Adam Johnson bar vitni fyrir rétti í gær. 18. febrúar 2016 09:30
Sunderland rekur Johnson Enska úrvalsdeildarfélagið Sunderland hefur rekið Adam Johnson en hann hefur játað á sig kynferðisbrot gegn barni. 11. febrúar 2016 20:18
Stúlkan segist „algjörlega hata“ Adam Johnson Réttarhöldin í máli knattspyrnumannsins Adam Johnson halda áfram. 17. febrúar 2016 11:30
Fórnarlamb Johnson vildi vernda hann Knattspyrnumanninum Adam Johnson er gefið að sök að hafa stundað kynferðislegt athæfi með fimmtán ára stúlku, sem bar vitni í réttarhöldunum í gær. 16. febrúar 2016 11:15
Johnson játar kynferðisbrot gegn barni Adam Johnson, leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Sunderland, hefur játað fyrir rétti að hafa brotið kynferðislega gegn stúlku undir samræðisaldri. 10. febrúar 2016 13:18
Johnson var átrúnaðargoð stúlkunnar sem hann misnotaði Stúlkan sem Adam Johnson, fyrrverandi leikmaður Sunderland, braut kynferðislega gegn var mikill aðdáandi fótboltamannsins. Þetta kom fram fyrir rétti í dag. 12. febrúar 2016 14:26