Johnson bað um nektarmynd af stúlkunni Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 18. febrúar 2016 09:30 Adam Johnson. Vísir/Getty
Adam Johnson, 28 ára knattspyrnumaður, mun hafa beðið fimmtán ára stúlku um að senda sér nektarmynd af henni. Það fullyrti vinkona stúlkunnar, sem bar vitni í réttarhöldum gegn Johnson í gær. Johnson hefur verið kærður fyrir að tæla og eiga í kynferðislegu sambandi við fimmtán ára stúlku en í upphafi vikunnar lýsti hún því hvernig kynni þeirra hófust og hvað átti sér stað þeirra á milli.Sjá einnig: Fórnarlamb Johnson vildi vernda hann Sjálfur hefur Johnson gengist við því að vingast við stúlkuna í því skyni að koma á kynferðislegu sambandi og játað því að hafa kysst hana. Hann neitar þó tveimur og öllu alvarlegri kærum um kynferðislegt samneyti við ólögráða barn. Stúlkan segist í dag „algjörlega hata“ Johnson. „Hann sagði öllum að hann væri saklaus og lét fólk kalla mig lygara. Hann lét fólk hvetja sig áfram í leikjum og lét fólk kalla mig öllum mögulegum illu nöfnum,“ sagði stúlkan í dag.Sjá einnig: Stúlkan segist „algjörlega hata“ JohnsonAdam Johnson í leik með Sunderland, sem er búið að reka leikmanninn frá félaginu.Vísir/GettyHún bað mig um að segja engum frá Vinkona stúlkunnar segir að hún hafi heyrt lýsingar af fundi þeirra í bifreið Johnson en að þau hafi einnig spjallað í gegnum samskiptaforritið Snapchat. „Þau voru að spjalla á Snapchat og hann bað hana um að senda sér nektarmynd af henni,“ sagði hún og bætti við að hún hafi aldrei farið til lögreglunnar með þessar upplýsingar. „Af því að hún bað mig um að segja engum frá.“ Vinkonan hitti stúlkuna eftir að hún hafði stundað kynferðislegt athæfi með Johnson í bifreið hans þann 30. janúar í fyrra.Sjá einnig: Johnson var átrúnaðargoð stúlkunnar sem hann misnotaði „Hún virtist mjög spennt yfir því í fyrstu. En síðan gerði hún sér grein fyrir því hvað hún hafði gert því hann á kærustu,“ sagði vinkonan sem trúði því ekki í fyrstu að stúlkan væri að segja satt frá - „af því að hann er knattspyrnumaður og hún bara fimmtán ára stúlka.“ En vinkonan skipti um skoðun þegar hún sá eftirfarandi skilaboð frá Johnson til stúlkunnar. „Ég var bara að reyna að fá þig úr buxunum.“
Enski boltinn Tengdar fréttir Sunderland rekur Johnson Enska úrvalsdeildarfélagið Sunderland hefur rekið Adam Johnson en hann hefur játað á sig kynferðisbrot gegn barni. 11. febrúar 2016 20:18 Stúlkan segist „algjörlega hata“ Adam Johnson Réttarhöldin í máli knattspyrnumannsins Adam Johnson halda áfram. 17. febrúar 2016 11:30 Fórnarlamb Johnson vildi vernda hann Knattspyrnumanninum Adam Johnson er gefið að sök að hafa stundað kynferðislegt athæfi með fimmtán ára stúlku, sem bar vitni í réttarhöldunum í gær. 16. febrúar 2016 11:15 Johnson játar kynferðisbrot gegn barni Adam Johnson, leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Sunderland, hefur játað fyrir rétti að hafa brotið kynferðislega gegn stúlku undir samræðisaldri. 10. febrúar 2016 13:18 Johnson var átrúnaðargoð stúlkunnar sem hann misnotaði Stúlkan sem Adam Johnson, fyrrverandi leikmaður Sunderland, braut kynferðislega gegn var mikill aðdáandi fótboltamannsins. Þetta kom fram fyrir rétti í dag. 12. febrúar 2016 14:26 Mest lesið „Getum ekki alltaf spilað á sama liðinu“ Handbolti Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Handbolti Dagskráin: Úrslitaleikur Arsenal og City Sport Kristín Evrópumeistari og bætti tvö heimsmet Sport Magnaður sigur Elísu og brautarmet á Ítalíu Sport Sjáðu klobbamark Beto og hvernig Welbeck afgreiddi Liverpool Enski boltinn Þórsarar stofna söfnunarreikning vegna sektar KKÍ Körfubolti „Hellings tækifæri fyrir unga menn úti á landi“ Körfubolti Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Íslenski boltinn Sjáðu sjóðheitan Kristian halda áfram að skora Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu klobbamark Beto og hvernig Welbeck afgreiddi Liverpool Löng bið Leeds eftir marki lengist Everton andar í hálsmál Chelsea eftir öruggan sigur Fulham blandar sér í Meistaradeildarbaráttuna Bras á gestunum og Brighton í Meistaradeildarbaráttu Ekitiké fór grátandi af velli Sjáðu mörkin og vítadómana sem United-menn eru æfir yfir Hér eftir verður það refsivert að smygla sér inn á leiki „Annaðhvort eru bæði brotin víti eða hvorugt“ Maguire fékk rautt og United missti tvívegis niður forystuna Arteta gaf ekkert upp um þátttöku Ödegaard í úrslitaleiknum Vandræðalegi markvörður Tottenham gæti átt strax endurkomu Yfirlýsing Liverpool: „Leikmenn okkar eru manneskjur en ekki skotmörk“ Býst við því að Salah jafni sig fljótt „Höfum gleymt ástæðunni fyrir því að VAR var tekið upp“ Guardiola: Liverpool-liðið hans Klopp er erfiðasta áskorunin en ekki Real „Þýðir mikið fyrir mig og leikmennina að fá ást frá stuðningsmönnunum“ Andy Carroll nýr stjóri Dagenham & Redbridge Mainoo, Maguire og Shaw eigi allir að fara á HM Segir að Anfield sé orðinn einn auðveldasti staðurinn til að spila á Vill verða varamaður Kane á HM í sumar Isak sást á æfingu Liverpool Pabbinn urðaði yfir þjálfara sem sá að sér Stórstjarnan biðlar til stuðningsmanna Liverpool „Fyrirgefðu mamma“ Úlfarnir unnu upp tveggja marka forskot og voru hársbreidd frá sigri „Allir vildu að hann yrði áfram hjá Man. United“ Fær ekki að spila hjá Liverpool en er kominn í norðurírska landsliðið Vill að forsetar eins og Trump verði sendir sjálfir á víglínuna Guardiola aflýsti æfingu liðsins Sjá meira
Sunderland rekur Johnson Enska úrvalsdeildarfélagið Sunderland hefur rekið Adam Johnson en hann hefur játað á sig kynferðisbrot gegn barni. 11. febrúar 2016 20:18
Stúlkan segist „algjörlega hata“ Adam Johnson Réttarhöldin í máli knattspyrnumannsins Adam Johnson halda áfram. 17. febrúar 2016 11:30
Fórnarlamb Johnson vildi vernda hann Knattspyrnumanninum Adam Johnson er gefið að sök að hafa stundað kynferðislegt athæfi með fimmtán ára stúlku, sem bar vitni í réttarhöldunum í gær. 16. febrúar 2016 11:15
Johnson játar kynferðisbrot gegn barni Adam Johnson, leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Sunderland, hefur játað fyrir rétti að hafa brotið kynferðislega gegn stúlku undir samræðisaldri. 10. febrúar 2016 13:18
Johnson var átrúnaðargoð stúlkunnar sem hann misnotaði Stúlkan sem Adam Johnson, fyrrverandi leikmaður Sunderland, braut kynferðislega gegn var mikill aðdáandi fótboltamannsins. Þetta kom fram fyrir rétti í dag. 12. febrúar 2016 14:26