Hark, fríar máltíðir og lítill peningur 8. desember 2008 12:46 Jóhann G. Jóhannsson leikari.
Á morgun koma út þættirnir um Nonna og Manna sem sýndir voru í Sjónvarpinu við miklar vinsældir. Þættirnir eru sex talsins og með aðalhlutverk fara Garðar Thor Cortes, Einar Örn Einarsson og Jóhann G. Jóhannsson. Vísir hafði samband við þann síðastnefnda og fékk hann til að rifja upp ævintýrið. „Ég leik smalann Júlla sem er að mínu mati hetjan í þáttunum. Hann er í raun aðalkallinn. Þættirnir hefðu eiginlega átt að heita JÚLLI en vegna þess að sá sem skrifaði sögurnar hét Jón Sveinsson og er auðvitað Nonni þá var það ofan á," svarar Jóhann. „Það var undarlegt og skemmtilegt þegar við vorum á Búðum á Snæfellsnesi og það var verið að taka upp senu þar sem Nonni og Manni gráta og minnast Júlla sem dó hetjulega," svarar Jóhann þegar talið berst að tökunum. Rekinn inn á hótel „Ég var á setti og var að „leikstýra" þeim. Hvísla að þeim að þeir ættu nú að gráta hærra og lék það fyrir þá og svo þegar tökur hófust þá sprungu þeir alltaf úr hlátri, því ég var bak við myndavél að gretta mig og gráta til að sýna þeim." „Það endaði með því að ég var rekinn inn á hótel því það var enginn vinnufriður. Svo auðvitað sagan þegar við fengum að keyra bílaleigubílinn, ég fékk ælupest, strákarnir duttu í ána, Nonni fékk rafstuð á viðkvæman stað og svona. En það eru sögur fyrir minningabókina Nonni, Manni og Júlli," segir Jóhann. Garðar Thor Cortes og Einar Örn Einarsson. Var þátttaka þín í Nonna og Manna ástæðan fyrir því að þú starfar sem leikari í dag? „Já, meðal annars, ég ákvað það reyndar þegar ég var 6 ára. En sannfærðist þarna, byrjaði á toppnum. Hélt að þetta væri lífið, trailer, stórstjörnur, fríar máltíðir, aðdáendabréf og virðing við mig sem sæmdi prinsi. En svo komst ég að hinu sanna. Þetta er hark og lítill peningur." Jóhann lætur til sín taka í eldhúsinu. MYND/Fréttablaðið. „Hef í raun ekki toppað þetta ennþá, komst nærri því þegar ég var valinn að leika í Clint Eastwood myndinni Flags of Our Fathers með aðbúnað, stjörnur og fríar máltíðir en komst þá aldrei fyrir framan vél," segir Jóhann að lokum. Nonni og Manni loksins fáanlegir á DVD. Sjá nánar hér.
Mest lesið Útför Megasar Lífið Sam Smith trúlofað Lífið Halla Hrund og uglurnar þrjár Lífið „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Lífið Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun Lífið Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Lífið „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Lífið Hvað veistu um… skák? Lífið Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Lífið Skímó á skikkanlegum tíma fyrir ömmur og afa Tónlist Fleiri fréttir Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Safna fjármagni með múrmeldýrum á OnlyFans Gurrý komin aftur á markaðinn Förðunardrottning selur á Framnesvegi „Heimurinn er betur staddur með Höllu sem forseta“ Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eignuðust dreng Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Carly Simons lærir að lifa með Parkinson Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Sjá meira