Jóhanna Vilhjálmsdóttir fjölmiðlakona og sambýlismaður hennar, Geir Sveinsson, eignuðust heilbrigðan dreng í gærmorgun, 8. desember.
Móður og barni heilsast vel. Þau voru útskrifuð af fæðingardeildinni sama dag og drengurinn kom í heiminn.
Jóhanna á afmæli 7. desember og fékk því sveinbarnið, sem er fimmta barn þeirra, í afmælisgjöf morguninn eftir.