Samantekt: Undankeppni EM í kvöld 17. október 2007 21:45 Skotar misstigu sig illa í 2-0 tapi gegn Georgíu í kvöld NordicPhotos/GettyImages
Fjöldi leikja fór fram í undankeppni EM í kvöld þar sem hæst bar stórtap íslenska landsliðsins í Liechtenstein. Skotar misstu af gullnu tækifæri til að tryggja sér sæti á EM með 2-0 tapi gegn Georgíu. Í A-riðli voru þrír leikir í kvöld. Þar eru Pólverjar á toppnum með 24 stig en Portúgalar héldu öðru sætinu með 2-1 sigri á Kasakstan í kvöld og hafa 23 stig. Serbar halda þriðja sætinu eftir 6-1 sigur á Aserum og þá unnu Belgar 3-0 sigur á Armenum. Í B-riðli vann Úkraína 5-0 sigur á Færeyjum þar sem Kalinchenko skoraði þrennu. Georgía vann nokkuð óvæntan sigur á Skotum 2-0 og á sama tíma unnu Frakkar 2-0 sigur á Litháum og skutust í efsta sætið. Thierry Henry skoraði bæði mörk Frakka og er orðinn markahæsti franski landsliðsmaðurinn frá upphafi. Það var Michel Platini sem átti gamla markametið. Frakkarnir eru í toppsætinu með 25 stig eftir 11 leiki, Skotar hafa 24 stig í öðru sæti eftir 11 leiki og Ítalar hafa 23 stig í þriðja sætinu eftir 10 leiki. Skotar eiga leik við Ítalíu á heimavelli í lokaleiknum sínum í riðlinum. Í C-riðli tryggðu Evrópumeistarar Grikkja sér sæti á EM í kvöld með góðum 1-0 útisigri á Tyrkjum. Grikkir hafa hlotið 25 stig og Norðmenn eru í öðru sæti með 20 stig eftir 2-0 sigur á Bosníu í kvöld. Tyrkir eru í þriðja sætinu með 18 stig. Í D-riðli eru Tékkar og Þjóðverjar búnir að tryggja sér sæti á EM. Þjóðverjar töpuðu 3-0 heima fyrir Tékkum í kvöld, en voru þegar öruggir áfram. Tékkarnir tryggðu sér með sigrinum sæti á EM og hafa báðar þjóðir 23 stig í efsta sætinu. Wales vann nauman 2-1 útisigur á San Marion og lítill glæsibragur á spilamennskunni þar á bæ um þessar mundir - liðið í næstneðsta sæti með aðeins 13 stig. Írar eru í þriðja sæti með 16 stig eftir 1-1 jafntefli við Kýpur. Í E-riðli voru tveir leikir í kvöld. Englendingar töpuðu fyrir Rússum 2-1 á útivelli og Makedónía vann Andorra 3-0. Króatar eru í efsta sæti með 26 stig, Englendingar hafa 23 í öðru sæti og Rússar í þriðja með 21 stig - en Rússar og Króatar eiga leik til góða á enska liðið. Í F-riðli okkar Íslendinga eru Svíar í efsta sæti með 23 stig eftir 1-1 jafntefli við Norður-Íra á heimavelli í kvöld. Spánverjar eru í öðru sæti með 22 stig og Danir og Norður-Írar hafa 17 stig. Danir lögðu Letta 3-1 á heimavelli í kvöld. Þá þarf fáum orðum að fara um 3-0 tap íslenska landsliðsins gegn Liechtenstein í riðlinum og nú munar aðeins einu stigi á botnliði Liechtenstein og því íslenska. Ef Liechtenstein nær að leggja Lettland í lokaleiknum og Ísland tapar fyrir Danmörku - gæti farið svo að íslenska liðið ræki lestina í riðlinum. Í G-riðli tryggðu Rúmenar sér sæti á EM með 2-0 útisigri á Luxemburg og hafa 26 stig í efsta sæti riðilsins. Hollendingar eru í öðru sæti þar með 23 stig eftir 2-0 sigur á Slóvenum, en Búlgarar þurftu að gera sér að góðu 1-1 jafntefli við Albaníu á útivelli og er liðið því í þriðja sætinu með 19 stig.
Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Enski boltinn Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Enski boltinn Bara einn í flugvélinni heim af HM Sport Conor McGregor segist vera sá besti í sögunni og ætlar að sanna það Sport Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Fótbolti Lýsandinn, Tevez og Agüero sturluðust þegar Messi jafnaði Fótbolti Fleiri fréttir Deschamps alveg sama þótt Argentínumenn dæmi í kvöld Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Konurnar fá helminginn af verðlaunafé bandaríska karlalandsliðsins Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Skoraði í styrktarleik fyrir móður sína Justin Bieber kemur fram í hálfleik á úrslitaleik HM Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Norska landsliðið flúði hótelið sitt Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Segir að læknir norska landsliðsins sé mjög upptekinn Lýsandinn, Tevez og Agüero sturluðust þegar Messi jafnaði FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Rannsaka kynþáttahatur argentínskra stuðningsmanna Egyptar vilja að dómararnir verði sendir heim Ungu strákar Blika að leggja lóð sín á vogarskálarnar Styrktarleikur á Selfossi þegar vinaliðin mætast í fyrsta sinn Sjáðu sigurmark Víkinga og meiðslin sem skyggðu á gleðina Blikar fá Hlyn heim frá Svíþjóð Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Hildur til Newcastle Maður dagsins á HM: Gat valið um fjórar íþróttir sem táningur Segir að það sé verið að dæma í hag Argentínu á HM FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Veikindi herja á norska liðið Sjá meira