Erlent

Samskipti Kúbu og BNA breytast með tilkomu Obama

Felipe Perez, utanríkisráðherra Kúbu.
Felipe Perez, utanríkisráðherra Kúbu.

Samskipta ráðamanna í Havana og stjórnvalda í Washington munu breytast og hugsanlega batna í kjölfar þess Barack Obama að sver embættiseið sem 44. forseti Bandaríkjanna 20. janúar næst komandi.

Obama hefur lagt til tilslökkun í samskiptum ríkjanna en hann hefur þó ekki hug á að afnema áratugagamalt viðskiptabann á Kúbu. Forsetinn tilvonandi hefur sagt að hann sé reiðubúinn til viðræðna.

,,Ef hann gerir þetta er það jákvætt sem fyrst skref," hefur Reuters-fréttastofan eftir Felipe Perez, utanríkisráðherra Kúbu.

Þetta er í fyrsta sinn sem áhrifamaður í ríkisstjórn Kúbu tjáir sig um þær hugmyndir sem Obama setti fram í kosningabaráttunni. Hugmyndir hans sem snúa að ferðalögum Kúbverja og Bandaríkjamanna á milli landanna sem og að auðvelda peningasendingar fólks til ættingja á Kúbu.

 

Sérfræðingar telja líklegt að ríkin hefji samstarf sín á milli á afmörkuðum sviðum og vinni til að mynda saman í baráttunni gegn fíkiniefnum. Aftur á móti muni athygli Obama fyrst og fremst beinast að fjármálakrísunni og hernaðarumsvifum Bandaríkjamanna í Afganistan og Írak.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×