Bogi smælar framan í gjaldþrotið 10. desember 2008 04:00 200 milljóna tilboð hvarf. Bogi og Nok á Hliði ekki á leið til Tailands í bráð. Fréttablaðið/E.Ól.
Bogi Jónsson húsráðandi á Hliði á Álftanesi vakti athygli fyrir nokkru þegar hann var kominn með 200 milljón króna Ebay-tilboð (1,4 milljón dali) í veitingastaðinn og húseignina. „Nei, þetta seldist ekki," segir Bogi. „Þegar fjölmiðlaathyglin skall á hvarf nú bara tilboðið, sem var frá Íslendingi. Ég hélt það væri ekki hægt að taka tilboð til baka en við nánari athugun er það víst hægt á meðan uppboðið er enn í gangi." Bogi hafði hugsað sér að borga upp skuldir og hefja nýtt líf í Taílandi með eiginkonu sinni Nok. „Ég var byrjaður að kíkja á sólarvörn og allar græjur," segir Bogi og hlær. „En maður bítur bara í það súra." Að Hliði hafa Bogi og Nok rekið rómað heimaveitingahús um árabil. „Það er enn þá mjög góður bisness í því og nóg að gera, pantað marga mánuði fram í tímann. Það var bara þetta hryllilega óstöðuga efnahagsástand sem fór með mig." Bogi hafði ráðist í framkvæmdir, byggt torfbæ og komið upp baðhúsi og nuddstofu fyrir gesti. „Fjármögnunin við það fór langleiðina upp að rauða strikinu, en við óbreytt ástand hefði það sloppið. Þegar óðaverðbólgan byrjaði og gengið féll náðu endar einfaldlega ekki saman, enda lánin bæði á myntkörfu og með verðbótum. Ég sé ekki fram á annað en að bankinn taki þetta bara." Þótt Bogi sé eitt af mörgum fórnarlömbum kreppunnar er hann ekkert að væla. „Maður ræður kannski ekki mörgu en maður ræður allavega hvort maður fer í gegnum lífið smælandi eða skælandi," segir hann. „Og auðvitað er kreppan ekki alslæm. Við sjáum hvað skiptir mestu máli eftir þetta. Auðvitað voru allir komnir á alltof mikinn sprett. Og það sem við erum að gera hérna er að hægja á fólki, þótt það sé ekki nema í hálftíma." Og þar til annað kemur í ljós munu Bogi og Nok halda áfram að hægja á fólki. Bogi er meira að segja langt kominn með friðarkúlu sem hann vígir á næstunni. Nánar um það síðar. - drg
Mest lesið Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Lífið „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Lífið Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Lífið „Það tók viku að vinna í Rúriki“ Tónlist Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Lífið Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni Lífið Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Lífið Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Lífið Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Lífið samstarf Írar ekki með í Eurovision annað árið í röð Tónlist Fleiri fréttir Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Sjá meira