Innlent

Var smitaður af illskeyttum þráðormum

Ísbjörninn sem felldur var á Þverárfjalli fyrir um tveimur vikum reyndist smitaður af tríkínum sem eru þráðormar sem eru illskeyttir sjúkdómsvaldar í mörgum tegundum spendýra.

Þetta var niðurstaða rannsókna Karls Skírnissonar, dýrafræðings á Tilraunastöðinni á Keldum, sem skoðaði björninn. Í tilkynningu frá honum kemur fram að það komi ekki á óvart því rannsóknir danskra sérfræðinga á ísbjörnum frá Austur-Grænlandi hafi sýnt að þar var um helmingur fullorðinna ísbjarna smitaður af tríkínum á 9. áratugnum.

Karl segir að líkur á smiti aukist eftir því sem ísbirnir eldast en Þverárfellsbjörninn hafi verið miðaldra. „Þótt nokkur fita hafi verið á honum var hann samt óvenju léttur miðað við árstíma sem bendir til þess að árangur hans við kópaveiðar á ísnum á útmánuðum hafi verið lélegur. Ósagt skal látið hvort tríkínurnar höfðu áhrif á hreyfigetu dýrsins eða hvort einhverjir aðrir sjúkdómsvaldar voru líka að hrjá dýrið. Veirufræðingar á Keldum munu innan skamms leita að mótefnum í blóði dýrsins gegn nokkrum þekktum veirusjúkdómum. Hraunbirnan verður innan tíðar rannsökuð á sama hátt á Tilraunastöðinni á Keldum," segir í tilkynningunni.

Á myndinni sést tríkínulirfa upprúlluð innan í þolhjúp í tungu ísbjarnarins sem felldur var við Þverfellsveg 3. júní 2008. Berist svona lirfur niður í meltingarfæri spendýra vaxa þær í fullorðna orma. Að mökun lokinni verpa kvenormarnir lirfum sem dreifast með blóðrás til vöðva dýrsins þar sem hver lirfa býr um sig í svona þolhjúp.MYND/Karl Skírnisson

Þar kemur enn fremur fram að tríkínur séu þráðormar sem séu illskeyttir sjúkdómsvaldar í mörgum tegundum spendýra, meðal annars í refum, hundum, og nagdýrum. „Sníkjudýrið lifir líka auðveldlega í mönnum en menn smitast ekki nema við neyslu á hráu kjöti. Tríkínur valda sársaukafullum sjúkdómi þar sem lirfurnar búa um sig í vöðvum og trufla hreyfigetu dýranna. Mikið af lirfum safnast fyrir í vöðvum sem krefjast mikils blóðsteymis, til dæmis í tungu, kjálkavöðva, þind og hjarta en lirfurnar berast út um líkamann með blóðrásinni," segir Karl.

Enn fremur bendir hann á að þráðormarnir hafi einu sinni áður fundist í ísbirni á Íslandi en sá var skotinn norður á Hornströndum á 7. áratugnum. „Tríkínur gætu auðveldlega haslað sér völl í íslensku lífríki, til dæmis ef refur eða hræétandi ránfuglar kæmust í kjöt af tríkínu-smituðum ísbirni. Vegna þessa er mikilvægt að farga ísbjarnarhræjum sem hér kunna að finnast eins fljótt og völ er á. Fljótlega verður rannsakað hvort birnan við Hraun var með tríkínur en Guðnýjarbjörninn margfrægi á Bolungarvík var ekki smitaður, segir Karl í tilkynningunni.


Tengdar fréttir

Hjalti fer fyrir ísbjarnastarfshópi

Hjalti J. Guðmundsson, sviðsstjóri náttúruauðlinda hjá Umhverfisstofnun, verður formaður starfshóps sem umhverfisráðherra hefur skipað og á að vinna tillögur vegna hugsanlegrar landtöku hvítabjarna hér á landi. Eins og fram kom á Vísi fyrr í dag er hópurinn skipaður eftir að tveir hvítabirnir komu hingað til lands á tveggja vikna tímabili. Starfshópur ráðherra á við vinnu sína að taka mið af reynslunni í þessi tvö skipti og viðbrögðum við komu bjarnanna.

Birnan var tæp 150 kíló

Birnan sem felld var í við Hraun á Skaga í Skagafirði í gær reyndist 147 kíló við vigtun. Forstöðumaður Náttúrustofu Norðurlands vestra segir það sýna að líkamsástand dýrsins hafi ekki verið gott.

Landhelgisgæslan í ísbjarnaleit í dag - fundað um birnu í ráðuneyti

Þyrla Landhelgisgæslunnar fer í eftirlitsflug um Hornstrandir í dag til þess að svipast um eftir ísbjörnum á svæðinu. Frá þessu greinir í tilkynningu frá Gæslunni. Ráðherra fundar sem stendur með yfirdýralækni dýragarðsins í Kaupmannahöfn vegna ísbjarnarins á Hrauni sem felldur var í gær.

Skipar starfshóp til að fara yfir ísbjarnamál

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra hefur skipað starfshóp til þess að fara yfir mál ísbjarnanna sem gengið hafa á land á síðustu vikum. Óskað verður eftir því að fá lánað eða kaupa búrið sem flutt var til landsins til þess að reyna að fanga birnuna á Hrauni á Skaga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×