Landhelgisgæslan í ísbjarnaleit í dag - fundað um birnu í ráðuneyti 18. júní 2008 11:27 MYND/Valli
Þyrla Landhelgisgæslunnar fer í eftirlitsflug um Hornstrandir í dag til þess að svipast um eftir ísbjörnum á svæðinu. Frá þessu greinir í tilkynningu frá Gæslunni. Ráðherra fundar sem stendur með yfirdýralækni dýragarðsins í Kaupmannahöfn vegna ísbjarnarins á Hrauni sem felldur var í gær. Í tilkynningu Landhelgisgæslunnar segir enn fremur að ísbjarnaeftirlitið í dag fari fram í nánu samstarfi við Umhverfisstofnun. Ætlunin er að fljúga aftur yfir svæðið á næstu dögum og eins verður hefðbundnu ískönnunarflugi á Fokker-flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SYN, haldið áfram. Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra og fulltrúar frá Umhverfisstofnun funda nú með Carsten Gröndahl, yfirdýralækni í dýragarðinum í Kaupmannahöfn, um málefni hvítabirnunnar sem felld var við Hraun á Skaga í Skagafirði í gær. Eins og kunnugt er kom Gröndahl með búr hingað til lands í gær til þess að reyna að klófesta birnuna í búr og var ætlunin að reyna að koma henni aftur til Grænlands. Það tókst hins vegar ekki. Að sögn Guðmundar Harðar Guðmundssonar, upplýsingarfulltrúa umhverfisráðuneytisins, verður farið yfir málið á fundi ráðherra og Gröndahls og þann lærdóm sem draga má af því. Þórunn sagði í gær farið yrði málið gaumgæfilega og að það kæmi jafnvel til greina að smíða búr hér á landi sem yrði til taks ef atvik sem þessi koma aftur upp. Umræður um viðbrögð við svona málum í framtíðinni eru algjörlega á byrjunarstigi að sögn Guðmundar enda skammt liðið frá því að björninn var felldur. Þá hafa vaknað spurningar um það hvort ábúendur á Hrauni fái það bætt ef í ljós kemur á næsta ári að skaði hafi orðið á æðarvarpinu þar sem björninn hafðist við. Guðmundur Hörður sagði of skammt frá liðið til þess að svara nokkru um það en þetta væri eitt þeirra mála sem farið yrði yfir á næstunni.
Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira