Erlent

Reiknað með óeirðum aftur í dag í Grikklandi

Grísk stjórnvöld búa sig undir áframhaldandi óeirðir og mótmæli í dag en verkalýðsfélög landsins hafa boðað allsherjarverkfall í öllu landinu sem standa á í sólarhring.

Jafnframt ætla verkalýðsfélögin eða efna til útifundar fyrir framan þinghúsið í Athenu nú í hádeginu.

Unglingurinn sem skotin var til bana um helgina var borinn til grafar síðdegis í gær og var allt með kyrrum kjörum meðan á jarðarförinni stóð en síðan blossuðu óeirðir upp aftur í gærkvöldi. Þær voru þó í rólegri kantinum miðað við það sem gengið hefur á síðustu tvo daga í landinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×