Innlent

Stórauknar byggingarheimildir verða veittar með nýju hverfaskipulagi

Kristinn Haukur Guðnason skrifar
Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, formaður skipulags- og samgönguráðs, segir nýtt hverfaskipulag einfalda leyfisveitingaferlið. Fréttablaðið/Anton Brink
Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, formaður skipulags- og samgönguráðs, segir nýtt hverfaskipulag einfalda leyfisveitingaferlið. Fréttablaðið/Anton Brink
Fyrsta hverfaskipulag Reykjavíkurborgar, eða hverfasjá, er tilbúið til notkunar, fyrir þrjú hverfi Árbæjar: Árbæ, Selás og Ártúnsholt. Í þessum hverfum verða veittar heimildir fyrir stækkun húsa, bæði fjölbýlishúsa og sérbýla, eða sem nemur 1.500 nýjum íbúðum.

Í mörgum blokkum fá húsfélög heimild til þess að byggja hæð ofan á gegn því að koma fyrir lyftum til að bæta aðgengið. Eigendur einbýlishúsa fá heimild til þess að bæta 40 fermetrum við húsið, en auk þess hafa margir eigendur ekki fullnýtt heimildir samkvæmt eldra deiliskipulagi. Þá verður leitast við að eigendur íbúða sem hafa ósamþykktar breytingar fái þær samþykktar. Allar upplýsingar verða fáanlegar á nýrri vefsíðu, hverfisskipulag.is, en þar er einnig hægt að sækja um byggingarleyfi.

„Þegar heimildirnar eru til staðar þá er búið að einfalda ferlið mikið, eitthvað sem tók marga mánuði áður. Þetta léttir einnig mikið á stjórnsýslunni,“ segir Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, formaður skipulags- og samgönguráðs.

Sigurborg segir spennandi að sjá hvernig nýtingin verður. „Þetta eru aðeins fyrstu hverfin. Ég hef trú á því að þetta gerist yfir langan tíma og að íbúar nýti þetta þegar þeim hentar.“

Auk þéttingar er takmarkið að gera hverfin sjálfbærari og sterkari samkvæmt Sigurborgu, en þarfir íbúanna eru mismunandi eftir hverfum. „Sums staðar þarf að bæta úrgangslausnir, grenndarstöðvar, gera stæði fyrir deilibíla og fleira,“ segir hún. Hverfasjáin verður opnuð með formlegum hætti í þjónustuveri Reykjavíkurborgar á föstudaginn klukkan 11.30. Hverfaskipulag fyrir Breiðholtið og Hlíðarnar koma á næsta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×