Fótbolti

Stressaður Henry öskraði á leikmenn Monaco

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Henry var aðeins 104 daga við stjórnvölinn hjá Monaco.
Henry var aðeins 104 daga við stjórnvölinn hjá Monaco. vísir/getty
Aleksandr Golovin, leikmaður Monaco, segir að Thierry Henry hafi verið stressaður og öskrað á leikmenn á meðan hann var knattspyrnustjóri liðsins.

Henry tók við Monaco af Leonardo Jardim í október í fyrra. Frakkinn stoppaði þó stutt við í sínu fyrsta stjórastarfi og var horfinn á braut eftir 104 daga. Monaco vann aðeins tvo af tólf deildarleikjum undir stjórn Henrys.

„Kannski var hann ekki enn búinn að „drepa“ leikmanninn Henry,“ sagði Golovin um gamla stjórann sinn. „Þegar hlutirnir gengu ekki upp á æfingasvæðinu varð hann stressaður og öskraði mikið. Það var kannski óþarfi.“

Rússneski miðjumaðurinn segir að Henry hafi gengið illa að aðlagast stjórastarfinu og það hafi sést á æfingum.

„Hann var frábær leikmaður og þeir einu sem eru nálægt honum í getu hjá Monaco eru [Radamel] Falcao og [Cesc] Fábregas. Hann átti það til að fara inn á æfingavöllinn, sýna okkur hvernig ætti að gera hlutina og öskra. Aðrir stjórar hefðu sýnt stillingu en hann varð strax taugaóstyrkur. Hann öskraði „reynið að ná boltanum af mér.“ Leikmennirnir voru rólegir en þeim var brugðið,“ sagði Golovin um Henry sem var aðstoðarþjálfari belgíska landsliðsins áður en hann tók við Monaco.

„Stundum varð hann sár og yrti ekki á okkur klukkutímum saman. Það er miklu erfiðara að vera aðalstjórinn með allar heimsins áhyggjur á herðunum en skemmtilegi aðstoðarmaðurinn.“

Jardim tók aftur við Monaco þegar Henry var rekinn og undir hans stjórn hefur liðið rétt úr kútnum. Þegar Henry var sagt upp var Monaco í 19. sæti frönsku úrvalsdeildarinnar. Núna eru Monaco-menn í 16. sætinu, sjö stigum frá fallsæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×