Dómarinn lyfti rauða spjaldinu tíu sinnum áður en hann varð að flauta leikinn af Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. febrúar 2018 21:30 Rautt spjald á loft. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Getty
Leikur í brasilíska fótboltanum á milli nágrannaliðanna Vitoria og Bahia endaði miklu fyrr en áætlað var. Ástæðan var að dómari leiksins þurfti hreinlega að flauta leikinn af. Leikur þessara liða sem koma bæði frá Salvador á norðausturströnd Brasilíu, var í Bahia fylkismótinu og því var mikið undir. Það var heldur ekkert gefið eftir og dómari leiksins þurfti þannig að lyfta sex gulum spjöldum í fyrri hálfleiknum. Denilson skoraði eina mark hálfleiksins fyrir Vitoria.De 'Derby van de Vrede' tussen Vitória en Bahia kleurde donkerrood met tien(!) spelers die van het veld werden gestuurd.https://t.co/C9ORyfSCfJ — NOS Sport (@NOSsport) February 19, 2018 Allt varð hinsvegar bókstaflega vitlaust þegar Bahia fékk vítaspyrnu á 50. mínútu leiksins. Vinicius skoraði úr henni og fagnaði síðan með því að dansa fyrir framan stuðningsmenn heimaliðsins. Þá hópuðust að leikmenn úr báðum liðum og upp hófust mikil handalögmál sem enduðu með því að átta leikmenn voru reknir af velli. Þrír leikmenn Vitoria og fimm leikmenn Bahia fengu þá rauða spjaldið. Þegar þarna var komið við sögu voru aðeins sautján leikmenn eftir inn á vellinum þar sem þrír varamenn Vitoria höfðu fengið rautt. Leikurinn hélt hinsvegar áfram.Regulamento geral de competições da CBF afirma que “após o início da partida, se uma das equipes ficar reduzida a menos de sete (7) atletas, dando causa a essa situação, tal equipe perderá os pontos em disputa” >> https://t.co/NQHCyyrGJW — Jornal Correio (@correio24horas) February 18, 2018 Þegar tveir leikmenn Vitoria fengu svo rauða spjaldið ellefu mínútum fyrir leikslok þá flautaði dómarinn leikinn af. Líklegt er að Bahia verði dæmdur 3-0 sigur í leiknum. Hér fyrir neðan má sjá forsíðu blaðs í Salvador um leikinn með fyrirsögninni „Aumkunarverrt“ Bom dia, amigos. Essa é a nossa capa de hoje pic.twitter.com/eoYIrbMtBr— Jornal Correio (@correio24horas) February 19, 2018
Fótbolti Mest lesið Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Systurnar báðar með tvö mörk á Ásvöllum og KR upp í annað sætið Íslenski boltinn Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin Körfubolti Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Enski boltinn Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Handbolti Arnar Freyr fagnaði sigri í frumrauninni með Flensburg en naumt tap hjá Arnóri Handbolti Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Handbolti Fylkir kláraði Gróttu undir lokin og Aron Snær með þrennu fyrir Þrótt Íslenski boltinn Bæjarar hófu titilvörnina með stórsigri Fótbolti Fleiri fréttir Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Systurnar báðar með tvö mörk á Ásvöllum og KR upp í annað sætið Fylkir kláraði Gróttu undir lokin og Aron Snær með þrennu fyrir Þrótt Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Hákon skoraði glæsimark gegn PSG Bæjarar hófu titilvörnina með stórsigri Jón Dagur skoraði sitt fyrsta deildarmark fyrir Berlínarbúa Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Mun sýna leiki þýsku úrvalsdeildarinnar á YouTube-rás sinni Rafael Leão til Galatasaray Dregið í Sambandsdeild: Íslendingar mætast og spila við nýliðana frá Andorra Dregið í Evrópudeild: Orri mætir Palace, Bournemouth og Juventus Styðja við börn með krabbamein: Arnór í búningi Rice á fyrsta Treyjudeginum Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Elías og félagar flugu áfram Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fyrstir til að fara alla leið án þess að vinna leik Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Goretzka mættur til Villa UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Sjá meira