Nýjasta ofurliðið í Kína niðurlægt í fyrstu umferð Arnar Geir Halldórsson skrifar 4. mars 2018 10:30 Dalian Yifang vísir/getty
Dalian Yifang eru nýliðar í kínversku ofurdeildinni og hugðust mæta í deildina með miklum trukki þar sem liðið fjárfesti í þremur leikmönnum sem hafa getið sér gott orð í evrópskum fótbolta skömmu áður en mótið hófst. Yannick Carrasco, Nico Gaitan og Jose Fonte gengu nefnilega í raðir félagsins á dögunum og þeir voru allir í byrjunarliðinu þegar liðið heimsótti Shanghai SIPG í fyrstu umferð deildarinnar í gær. Skemmst er frá því að segja að þrátt fyrir að tefla fram þessum þremur ofurstjörnum fengu nýliðarnir skell þar sem Shanghai SIPG vann 8-0 sigur þar sem Brasilíumennirnir Oscar og Hulk fóru mikinn en Oscar gerði þrennu og Hulk skoraði eitt mark. Carrasco og Gaitan leiddu sóknarlínu Dalian Yifang og léku allan leikinn á meðan Fonte hóf leik í hjarta varnarinnar en var skipt af velli eftir 81 mínútu. Þeir tveir fyrrnefndu yfirgáfu Atletico Madrid til að leika í Kína en Fonte hefur leikið með Southampton og West Ham í ensku úrvalsdeildinni undanfarin ár. Dalian Yifang borgaði tæplega 30 milljónir punda fyrir Carrasco en þessi belgíski kantmaður var orðaður við lið á borð við Manchester United, Tottenham og Chelsea áður en hann ákvað að færa sig um set til Kína. Samningur hans við Dalian Yifang er talinn færa kappanum tæpar 10 milljónir punda í árslaun
Fótbolti Mest lesið Þema í tapleikjum Liverpool á þessu ári Enski boltinn Keppir á Steraleikunum en ætlar líka á næstu Ólympíuleika Sport Vilja lífstíðarbann fyrir þjálfara sem tók upp kvenkyns leikmenn í laumi Fótbolti Trump: „Mér er alveg sama hvort Íran tekur þátt í HM“ Fótbolti Saga Elvars er ótrúleg Sport Þorsteinn Leó með sigurmark á lokasekúndunum Handbolti Gagnrýndi Arsenal fyrir leik liðanna í kvöld Enski boltinn Liverpool setti afar svekkjandi met Enski boltinn Gullit er hættur að horfa á fótbolta Enski boltinn Myndband af Rodrygo að nudda hné Ronaldo fær nýja þýðingu Fótbolti Fleiri fréttir Greiða skaðabætur vegna fjarveru Messi Myndband af Rodrygo að nudda hné Ronaldo fær nýja þýðingu Trump: „Mér er alveg sama hvort Íran tekur þátt í HM“ Toppbaráttan: Árlegi City-skriðþunginn og brúðarmærin sem vill verða brúður Gleði og sorg í Bítlaborginni í gærkvöldi: Sjáðu mörkin Liverpool setti afar svekkjandi met Gullit er hættur að horfa á fótbolta Gagnrýndi Arsenal fyrir leik liðanna í kvöld Vilja lífstíðarbann fyrir þjálfara sem tók upp kvenkyns leikmenn í laumi Þema í tapleikjum Liverpool á þessu ári Mark í framlengingu framlengir bikarævintýri Port Vale Börsungar úr leik þrátt fyrir öruggan sigur í kvöld Mark í uppbótartíma tryggði botnliðinu sigur gegn Liverpool Everton tengir saman sigra og Sunderland hafði betur gegn Leeds United Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Beta byrjar undankeppni HM á sigri gegn Ísrael Uppgjörið: Spánn - Ísland 3-0 | Spænska liðið sýndi mátt sinn og megin á köflum England hitaði upp fyrir leik gegn Íslandi með stórsigri Stórir íþróttaviðburðir í hættu vegna átaka í Mið-Austurlöndum Tímabilinu lokið og HM úr sögunni hjá Rodrygo Í gervi nautabana fyrir eina sigurinn á Spáni Efins um að ráða Carrick til frambúðar: „Maður er brenndur af fyrri tíð“ Grímuklæddir áhorfendur ruddust inn á völlinn Keypti Cucurella af því að Man City vildi hann Rekinn eftir 8-0 sigur „Ísland er með óþægilegt lið“ Bannar leikmanni sínum að lyfta lóðum Skoða leiðir fyrir knattspyrnustjóra til að skora á dóma í enska boltanum „Niðurlægði mig fyrir framan allan heiminn“ Sjá meira