Innlent

Sjóböðin á Húsavíkurhöfða opnuð á föstudaginn

Birgir Olgeirsson skrifar
Framkvæmdin kostar um 500 til 600 milljónir króna.
Framkvæmdin kostar um 500 til 600 milljónir króna. Gaukur Hjartarson
Ráðgert er að opna sjóböðin á Húsavíkurhöfða á föstudaginn klukkan 10. Þar verður hægt að baða sig upp úr sjó sem er hitaður með jarðvarma upp úr borholum. Einnig verður hægt að fara í gufubað og snæða á glæsilegum veitingastað sem hannaður er af Basalt Arkitektum. Það mun kosta 4.300 krónur að baða sig í sjóböðunum en hægt verður að kaupa árskort á sanngjörnu verði að sögn framkvæmdastjórans.

Sjóböðin hafa verið í undirbúningi frá árinu 2011 en árið 2014 sótti félagið Sjóböð ehf. Um lóð efst á Húsavíkurhöfða. Framkvæmdir hófust í október í fyrra en áætlað er að kostnaðurinn hljóði upp á 500 til 600 milljónir króna.

Gaukur Hjartarson
Þeir sem fara í sjóböðin munu hafa útsýni yfir Skjálfandaflóann og yfir Kinnarfjöll.

Áætlað var að opna böðin í júní síðastliðnum en vegna tafa á framkvæmdinni var ákveðið að færa opnunina fram í lok ágúst.

Gaukur Hjartarson
Þeir sem lögðu fjármagn í verkið eru Norðursigling, framkvæmdasjóðurinn Tækifæri, Orkuveita Húsavíkur og Jarðböðin sjálf. Trésmiðjan Rein sér um framkvæmdina.

Sigurjón Steinsson er framkvæmdastjóri Sjóbaðanna en hann segir allt að verða klárt innanhúss og í kringum böðin sjálf, en eitthvað eigi eftir að vinna í umhverfinu í kringum svæðið sjálft.

Gaukur Hjartarson
„Auk baðanna sjálfra erum við með gufubað en ekki með kaldan pott. Það er verið að skoða að koma köldum potti upp fyrir næsta sumar en við höfum heyrt mikið kallað eftir því,“ segir Sigurjón.

Hann segir sjóböðin afar græðandi og heilandi og að það sé einstök upplifun að liggja í þeim upp á höfðunum og virða fyrir sér útsýnið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×