Eiður Smári: Hazard er besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar Arnar Geir Halldórsson skrifar 18. febrúar 2018 23:00 Eiður Smári lék í sex ár með Chelsea og varð tvisvar sinnum Englandsmeistari með liðinu. vísir/getty
Eiður Smári Guðjohnsen verður væntanlega töluvert í sviðsljósinu í tengslum við einvígi Barcelona og Chelsea í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Þessi tvö fyrrum félög Eiðs Smára mætast á þriðjudag en Eiður þekkir vitanlega vel til á báðum stöðum. Hann var í viðtali við Sport360 þar sem hann ræddi meðal annars um einvígið. ,,Það vekur upp margar minningar. Ég myndi ekki segja að það væri rígur á milli félaganna en þau hafa mæst nokkuð oft á undanförnum árum og það hafa alltaf verið spennandi einvígi. Ég var svo heppinn að skora bæði fyrir Chelsea gegn Barcelona og fyrir Barcelona gegn Chelsea.” ,,Ég á erfitt með að spá fyrir um þetta einvígi. Chelsea hafa auðvitað verið frekar óstöðugir upp á síðkastið en þó Barcelona séu í þægilegri stöðu í spænsku deildinni tel ég þetta ekki vera besta lið Barcelona frá upphafi,” segir Eiður Smári. Skærasta stjarna Chelsea, Eden Hazard, hefur verið orðaður við spænsku stórliðin Real Madrid og Barcelona en þessi belgíski kantmaður er í miklum metum hjá Eiði Smára. ,,Hazard er að mínu mati besti leikmaðurinn í ensku úrvalsdeildinni. Það er erfitt að segja til um hvort hann fari til Spánar eða ekki. Knattspyrnumenn hafa mismunandi markmið og ég þekki Hazard ekki mjög vel,” segir Eiður. Eiður Smári yfirgaf Chelsea og gekk í raðir Barcelona sumarið 2006 og segir hann þá ákvörðun hafa tekið verulega á. ,,Ég vildi ekki yfirgefa Chelsea þegar ég gerði það en það var óumflýjanlegt í minni stöðu á þeim tíma. Auðvitað erum við líka að tala um Barcelona sem er nánast ómögulegt að hafna. Chelsea er frábær klúbbur sem ég elska og ég naut tímans þar. Það var erfitt að yfirgefa félagið,” segir Eiður.
Fótbolti Mest lesið Mögulegt áfall fyrir Slóvena í aðdraganda EM Körfubolti Hetjan Arnór stýrði fjöldasöng eftir leik Fótbolti Eze hafi nú þegar náð samkomulagi við Tottenham Fótbolti Kane og Diaz tryggðu Bayern Ofurbikarinn Fótbolti Dagskráin í dag: Fyrsti risaleikur tímabilsins Sport Brynjólfur tryggði dramatískan sigur Fótbolti „Þakklát fyrir að vera uppalin í þessum klúbbi“ Fótbolti Jökull í Kaleo hitti stjörnur Rauðu djöflanna og spilaði á Old Trafford Enski boltinn Uppgjörið: FH - Breiðablik 2-3 | Blikar bikarmeistarar eftir framlengingu Íslenski boltinn Allt jafnt í fyrsta leik Orra og félaga Fótbolti Fleiri fréttir Eze hafi nú þegar náð samkomulagi við Tottenham Hetjan Arnór stýrði fjöldasöng eftir leik Brynjólfur tryggði dramatískan sigur Kane og Diaz tryggðu Bayern Ofurbikarinn „Hörku barátta tveggja góðra liða“ „Þakklát fyrir að vera uppalin í þessum klúbbi“ „Ætluðum ekki heim án sigurs“ „Loksins, tilfinningin er geggjuð“ Allt jafnt í fyrsta leik Orra og félaga Arnór og Ari skoruðu er Norrköping hafði betur í Íslendingaslag Öruggur sigur Börsunga gegn níu heimamönnum Úlfarnir steinlágu gegn City Draumabyrjun nýliðanna úr norðri | Muniz bjargaði Fulham Uppgjörið: FH - Breiðablik 2-3 | Blikar bikarmeistarar eftir framlengingu Daníel Tristan skoraði í stórsigri Ísak skoraði enn eitt markið fyrir Lyngby Richarlison sýndi nýliðunum enga miskun Markalaust á Villa Park Semenyo tjáir sig: „Fótboltinn sýndi sínar bestu hliðar þegar mest á reyndi“ Fáar spilað leik á þessum velli Jökull í Kaleo hitti stjörnur Rauðu djöflanna og spilaði á Old Trafford Amorim brattur: „Ég er bjartsýnni“ Liverpool vinni ekki deildina haldi liðið áfram á þessari braut Englarnir frá LA án sigurs í átta leikjum „Vona að við séum búnar að læra nægilega mikið og förum að vinna“ Öll helstu atvikin úr opnunarleiknum: Átti varnarmaður Bournemouth að vera rekinn af velli? „Eiginlega alveg viss“ um að Rashford megi spila á morgun „Ég hélt að við værum komin lengra“ „Betra er seint en aldrei“ Villareal vann í endurkomu Cazorla og frumraun Partey Sjá meira