Dularfullur gibbonapi í grafhýsi tilheyrði ömmu fyrsta Kínakeisara Gunnar Hrafn Jónsson skrifar 22. júní 2018 08:38 Gibbonapapar ásamt unga Vísir/Getty
Vísindamenn í Kína hafa uppgötvað útdauða og áður óþekkta tegund gibbonapa í 2300 ára gömlu grafhýsi keisara. Það rennir meðal annars stoðum undir þá kenningu að mörgum apategundum hafi verið útrýmt af mannavöldum síðustu aldir og árþúsundir. Apategundin hefur hlotið nafnið Junzi imperialis og er heitið vísun í tengslin við Qin Shihuang, fyrsta keisara Kína. Hann fyrirskipaði byggingu fyrstu hluta Kínamúrsins og lét gera terrakotta hermennina svonefndu. Sjálft nafnið Kína er talið vera dregið af nafni Qins, sem var uppi á þriðju öld fyrir Krist. Apinn dularfulli fannst í grafhvelfingu sem er talin tilheyra ömmu keisarans, lafði Xia. Líklegt þykir að apinn hafi verið í hennar eigu, enda hafa gibbonapar lengi verið álitnir stöðutákn kínversku yfirstéttarinnar. Ásamt beinum apans fundust bein af hlébörðum, bjarndýrum og gaupum í sömu hvelfingu. Margar tegundir gibbonapa, og apa almennt, eru í útrýmingarhættu í dag. Tvær tegundir hafa nýlega horfið í suðurhluta Kína og eru taldar útdauðar og margar fleiri eru í bráðri hættu. Hainan gibbonapinn í Suður-Kína er sennilega sjaldgæfasta apategund heims, talið er að innan við 30 dýr séu eftir.
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Sjá meira