Næstmarkahæst í Meistaradeild Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 24. apríl 2018 09:00 Sara í leik með Wolfsburg. vísir/getty
Sara Björk Gunnarsdóttir og stöllur hennar í Wolfsburg eru einum leik frá því að komast í úrslit Meistaradeildar Evrópu. Þýsku meistararnir gerðu góða ferð til Lundúna í gær og unnu 1-3 sigur á Chelsea í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Chelsea komst yfir eftir aðeins þrjár mínútur en Sara jafnaði metin á 18. mínútu. Hún skallaði þá fyrirgjöf Löru Dickenmann í netið. Tveimur mínútum fyrir hálfleik komst Wolfsburg yfir með sjálfsmarki og um miðjan seinni hálfleik skoraði Dickenmann svo þriðja mark þýska liðsins. Sara hefur spilað einkar vel með Wolfsburg í Meistaradeildinni í vetur og skorað grimmt. Mörkin eru orðin sex í aðeins sjö leikjum. Ef mörkin úr undankeppninni eru ekki tekin með er Sara næstmarkahæst í Meistaradeildinniw á þessu tímabili ásamt samherja sínum hjá Wolfsburg, Pernille Harder. Aðeins Ada Hederberg hjá Evrópumeisturum Lyon hefur skorað meira, eða 14 mörk. Lyon gerði markalaust jafntefli við Manchester City í fyrri leik liðanna í hinni undanúrslitarimmunni. Wolfsburg ruddi Atlético Madrid, Fiorentina og Slavia Prag úr vegi á leið sinni í undanúrslitin. Wolfsburg vann fyrri leikinn gegn Atlético Madrid í 32-liða úrslitunum 0-3 og þann seinni 12-2 þar sem Sara skoraði eitt mark. Landsliðsfyrirliðinn skoraði svo tvívegis í 0-4 sigri Wolfsburg á Fiorentina í fyrri leiknum í 16-liða úrslitum og eitt í 3-3 jafnteflinu í seinni leiknum. Í 8-liða úrslitunum mætti Wolfsburg Slavia Prag, sem Sandra Marwwía Jessen leikur með. Wolfsburg vann fyrri leikinn með fimm mörkum gegn engu og skoraði Sara eitt marka þýska liðsins. Seinni leiknum lyktaði svo með 1-1 jafntefli. Sara hefur sem áður sagði leikið alla sjö leiki Wolfsburg í Meistaradeildinni og skorað í fimm þeirra. Þetta er besta tímabil Söru í Meistaradeildinni hvað markaskorun varðar. Hún hafði áður mest skorað fimm mörk á einu tímabili. Það var tímabilið 2011-12 þegar Sara lék með sænska liðinu Rosengård. Sara hefur alls skorað 17 mörk í Meistaradeildinni með Wolfsburg og Rosengård. Þá gerði hún þrjú mörk í undankeppni Meistaradeildarinnar tímabilið 2010-11 þegar hún lék með Breiðabliki. Næsta sunnudag fær Wolfsburg Chelsea í heimsókn í seinni leiknum í undanúrslitunum. Þýska liðið er með öll tromp á hendi sér en gestirnir frá Englandi þurfa að vinna þriggja marka sigur til að snúa dæminu sér í vil. Það er því ansi líklegt að Íslendingar munum eiga fulltrúa í úrslitaleik Meistaradeildarinnar sem fer fram á heimavelli Dynamo Kiev í Úkraínu fimmtudaginn 24. maí næstkomandi.
Fótbolti Mest lesið Segir að sigurkarfa Elvars hafi verið ólögleg Körfubolti Vinkonur og liðsfélagar létust á leið heim af æfingu Sport Skellur fyrir bankabók HSÍ Handbolti Allir sem hylji munninn verði reknir út af Fótbolti Liverpool rak sérfræðinginn sinn og þá fór allt að gerast Enski boltinn Roy Keane næstum búinn að skemma feril Heimis Fótbolti Sara og fjölskylda örugg en staðan hræðir Fótbolti Ældi svakalega á völlinn en hélt svo áfram að spila Enski boltinn „Ég hef bara miklar áhyggjur af þessu“ Enski boltinn „Hjartað mitt hætti næstum því að slá“ Enski boltinn Fleiri fréttir Sesko-dagar á Old Trafford: „Vildum byggja upp sjálfstraustið hans“ Væri kominn í þúsund mörk ef hann hefði nýtt öll vítin Chelsea jafnaði metið sem lið Heiðars Helgu setti Ældi svakalega á völlinn en hélt svo áfram að spila „Hvað er hann að gera hér?“ „Hjartað mitt hætti næstum því að slá“ „Ég hef bara miklar áhyggjur af þessu“ Sjáðu hetjudáðir Sesko, hornamörk Arsenal og ófarir Tottenham Hefur aldrei fengið hausverk á ævinni Liverpool rak sérfræðinginn sinn og þá fór allt að gerast Roy Keane næstum búinn að skemma feril Heimis Allir sem hylji munninn verði reknir út af Dramatík hjá gömlu konunni í Rómarborg Losnar um pressu á Sverrislausan Benítez Arsenal vann hornspyrnukonsert Dramatík hjá Hákoni Sögulega slakur árangur FCK Fjórða tap Tottenham í röð og fallhættan heldur áfram Sjóðheitur Sesko sendi United upp í þriðja sæti Sjáðu Kristian skora og afgreiða Feyenoord Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra Sara og fjölskylda örugg en staðan hræðir Harmar baulið á leikmenn sem fengu að brjóta föstu Sjáðu mörkin: Samherji Hákonar algjör klaufi og mikið drama í lokin Sjáðu Semenyo setja pressu á Arsenal og markasúpu Liverpool „Ólíklegt“ að Íran fari á HM vegna árásarinnar Hristu af sér Bodö tapið og eru skrefi nær titlinum Kane og Kimmich kláruðu Dortmund Semenyo hetjan og stutt í Arsenal Sjá meira