Harðari refsing fyrir brot framin í fátækrahverfum Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 26. febrúar 2018 17:11 Áætlun ríkisstjórnarinnar verður kynnt á fimmtudag. Vísir/Getty
Með það fyrir augum að tryggja öryggi íbúa sem búa í fátækrahverfum áformar danska ríkisstjórnin að taka upp tvöfalt þyngri refsingar fyrir þá sem brjóta af sér á slíkum svæðum. Ríkisstjórnin kynnir áætlun sína um aðgerðir til að draga úr glæpatíðni á fimmtudag. Danska ríkisútvarpið og Berlingske greina frá þessu.Auknar valdheimildir í fátækrahverfumAuk þess sem breytingar eru boðaðar í refsilöggjöf er í áætluninni gert ráð fyrir því að efla löggæslu til muna í fátækrahverfum. Talað er um svokölluð „gettó“ í áætluninni en það eru hverfi sem einkennast af félagslegum vandamálum, glæpaklíkum og fátækt. Á þessu ári mun lögreglan ráðast í 25 umfangsmiklar aðgerðir. Søren Pape Poulsen, dómsmálaráðherra í Danmörku, segir að það sé mikilvægt að tryggja öryggi íbúa alls staðar á landinu. Í Danmörku eigi ekki að vera hverfi sem séu merkjanlega hættulegri fyrir fólk en önnur.Ekki allir jafnir gagnvart lögunumMargir hafa gagnrýnt harðlega áætlun ríkisstjórnarinnar og fara þar fremst í flokki talsmenn hverfasamtaka í Árósum og Kaupmannahöfn sem segja útspilið mismuna fólki. Ekki séu allir jafnir fyrir lögunum, gangi áætlunin eftir. Muhammad Aslam, sem fer fyrir hverfissamtökum í Nørrebro, segir að útspilið sé árás á umrædd hverfi. Með þessu sé greinilega verið að skapa aðstæður fyrir aukna stéttaskiptingu í þjóðfélaginu með því að skipa fólki í a-deild og b-deild, er haft eftir Aslam.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Fleiri fréttir Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Sjá meira