Sendu alla stuðningsmenn félagsins í bann fyrir ógeðslega söngva Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. febrúar 2018 11:00 Stuðningsmenn Nacional mega ekki koma á næstu þrjá útileiki liðsins. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Getty
Úrúgvæska félagið Nacional hefur verið dæmt til að greiða stóra sekt og stuðningsmenn félagsins mega ekki koma nálægt næstu þremur leikjum. Ástæðan er mjög ósmekkleg hegðun stuðningsmanna Nacional í leik liðsins á móti brasilíska félaginu Chapecoense í Suður-Ameríkubikarnum í síðasta mánuði.Nacional have been fined and their fans banned for 'sick' taunts about the Chapecoense plane crash https://t.co/DMS8WpAiGBpic.twitter.com/tEASybC7Wu — BBC Sport (@BBCSport) February 14, 2018 Stuðningsmenn Nacional sungu þá ógeðslega söngva um fluglysið í fyrra þar sem að Chapecoense missti 19 leikmenn og starfsfólk. Chapecoense liðið var þá á leik í úrslitum Copa Sudamericana keppninnar. Úrslitaleikirnir fóru aldrei fram en Chapecoense fékk Copa Sudamericana titilinn að gjöf til minningar um þá sem létust í flugslysinu. Kólumbíska félagið Atletico Nacional, mótherji Chapecoense í úrslitaleiknum, fór fram á þetta. Chapecoense var sýnt mikil samúð eftir leikinn og fótboltamenn víðsvegar að buðust til að hjálpa liðinu í næstu leikjum. Nacional þarf að greiða 80 þúsund dollara í sekt eða meira en átta milljónir íslenskra króna. Það var Conmebol, knattspyrnusamband Suður-Ameríku, sem tók á málinu.#LasMásLeídas | Indignante: hinchas del Nacional de Montevideo se burlan del accidente del Chapecoense https://t.co/LOhsINvgTL — EL HERALDO (@elheraldoco) February 4, 2018 Stuðningsmenn félagsins mega ekki mæta á næstu þrjá útileiki liðsins í Suður-Ameríkukeppnunum. Nacional baðst afsökunar á framferði stuðningsmanna sinna, sagði þetta skelfilegt og að fólk þar á bæ skammist sín mikið. Úrúgvæska liðið vann báða leikina á móti Chapecoense 1-0 og þar með 2-0 samanlagt.
Fótbolti Mest lesið Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin Körfubolti Arnar Freyr fagnaði sigri í frumrauninni með Flensburg en naumt tap hjá Arnóri Handbolti Systurnar báðar með tvö mörk á Ásvöllum og KR upp í annað sætið Íslenski boltinn Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Handbolti Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Enski boltinn Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Handbolti Bæjarar hófu titilvörnina með stórsigri Fótbolti Fleiri fréttir Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Systurnar báðar með tvö mörk á Ásvöllum og KR upp í annað sætið Fylkir kláraði Gróttu undir lokin og Aron Snær með þrennu fyrir Þrótt Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Hákon skoraði glæsimark gegn PSG Bæjarar hófu titilvörnina með stórsigri Jón Dagur skoraði sitt fyrsta deildarmark fyrir Berlínarbúa Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Mun sýna leiki þýsku úrvalsdeildarinnar á YouTube-rás sinni Rafael Leão til Galatasaray Dregið í Sambandsdeild: Íslendingar mætast og spila við nýliðana frá Andorra Dregið í Evrópudeild: Orri mætir Palace, Bournemouth og Juventus Styðja við börn með krabbamein: Arnór í búningi Rice á fyrsta Treyjudeginum Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Elías og félagar flugu áfram Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fyrstir til að fara alla leið án þess að vinna leik Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Goretzka mættur til Villa UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Sjá meira