Mætti Val fyrir tveimur árum en nú var mótherjinn Real Madrid Anton Ingi Leifsson skrifar 3. október 2018 08:00 Arnór í baráttunni við einn besta varnarmann í heimi, Raphael Varane, í leiknum í gær. vísir/getty
Saga knattspyrnumannsins Arnórs Sigurðssonar er ótrúleg en hann hefur skotist fljótt upp á stjörnuhimininn í boltanum. Hinn nítján ára gamli Arnór hefur gert margt þrátt fyrir ungan aldur. Það eru ekki nema tvö ár síðan að Arnór var að spila í Pepsi-deild karla. Hann spilaði sex leiki með Skagamönnum, uppeldisfélagi sínu, tímabilið 2016 þá sautján ára gamall. Þar á meðal kom hann inn á sem varamaður gegn Val í lokaumferðinni, 1. október 2016 er hann var skipt inn á fyrir Ian Williamsson. Hann spilaði síðustu átta mínútur leiksins. Hann vakti mikinn áhuga erlendra liða og var svo seldur til Norrköping vorið eftir, nánar tiltekið í mars 2017, en þar var hann fljótur að vinna sér sæti í byrjunarliðinu þrátt fyrir ungan aldur. Þar spilaði hann afar vel og í sumar voru lið víðsvegar um Evrópu byrjuð að hafa samband við Norrköping um að klófesta Skagamanninn. Norrköping vildi ekki selja hann svo auðveldlega og neitaði góðum tilboðum í hann, meðal annars frá Rússlandi. Þeir gátu hins vegar ekki sagt nei þegar það kom risa tilboð frá einu stærsta félagi Rússlands, CSKA Moskva, í Arnór og ákvað Norrköping að selja hann til CSKA síðla sumars. CSKA er í Meistaradeildinni þetta tímabilið og Arnór kom inn á sem varamaður í fyrstu umferðinni gegn Viktoria Plzen er CSKA náði 1-1 jafntefli með jöfnunarmarki í uppbótartíma. Í gærkvöldi kom svo Arnór aftur inn á og spilaði hann tólf mínútur. Nú voru mótherjarnir örlítið sterkari, þrefaldir Evrópumeistarar, Real Madrid. CSKA vann þó leikinn 1-0 með marki Nikola Vlasic í byrjun leiks. Uppgangur unga Skagamannsins er í raun ótrúlegur og sér ekki fyrir endann á honum.Breyting Arnórs á tveimur árum: 1. október 2016 - Spilar átta mínútur gegn Val í Pepsi-deild karla 2. október 2018 - Spilar tólf mínútur gegn þreföldum Evrópumeisturum Real Madrid í Meistaradeild Evrópu
Fótbolti Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn Landsliðskona í Val Handbolti „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Tijjani Reijnders farinn Enski boltinn Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Fótbolti Fleiri fréttir Marcus Rashford búinn að fá nóg Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fanney í markinu fyrstu tvo leikina og sex stig komin í hús Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Eiður Smári þjálfar KA Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Lík fannst á leikvangi Charlton Monaco riftir samning við Pogba Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Daníel Guðjohnsen úr frystinum til Þýskalands Myndi taka kúlu fyrir Infantino Baleba færist nær United Jóhann áfram í limbói en krakkarnir í skóla á Spáni Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn „Fann í líkama, hjarta og sál að nú væri komið gott“ Allt klárt hjá Aroni eftir erfiðustu ákvörðun ferilsins Mourinho: Rodri fékk mig til að efast Musiala hneig niður í annað skipti á fjórum dögum vegna galla í taugakerfi Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi Arsenal-goðsögn að taka við Senegal Norsku Víkingarnir gerðu jafntefli í Zagreb Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið Rodri genginn í raðir Barcelona „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Sjá meira