Albert búinn að fá nóg af B-liðinu: „Þið sjáið mig ekki aftur þar í bráð“ Tómas Þór Þórðarson skrifar 23. janúar 2018 10:45
Albert Guðmundsson minnti heldur betur á sig hjá PSV Eindhoven um helgina þegar að hann lagði upp sigurmark liðsins í sigri á Heracles, 2-1. Albert fór einnig hamförum með íslenska landsliðinu í Indónesíu fyrr í mánuðinum þar sem hann gaf fjórar stoðsendingar í fyrri leiknum og skoraði þrennu í þeim síðari. Þessi 21 árs gamli vesturbæingur vonast, eins og allir íslenskir fótboltamenn, eftir því að vera í HM-hóp Heimis Hallgrímssonar í sumar og aukast líkurnar á því að það gerist með hverjum leiknum þessa dagana. Albert hefur ekki fengið mörg tækifæri með aðalliði PSV en hann hefur fimm sinnum komið inn á sem varamaður undir lokin á þessu tímabili og spilað í heildina fimmtán mínútur. Hann hefur aftur á móti farið á kostum með B-liðinu, Jong PSV, í næstefstu deild en þar skoraði hann 18 mörk í fyrra og er búinn að skora fimm og leggja upp önnur fjögur á þessu tímabili. Albert er aftur á móti kominn með nóg af því að spila fyrir B-liðið enda áttar hann sig á því að líkurnar á að fara til Rússlands eru töluvert meiri ef hann fær að spila með aðalliðinu. „Þið sjáið mig ekki aftur þar í bráð,“ segir Albert um Jong PSV í viðtali við Eindhoven Dagblad. „Ég þarf að sýna hvað ég get með aðalliðinu og halda áfram að bæta mig.“ Aðspurður hvort hann hefði ekki átt að koma fyrr inn á í leiknum svarar Albert: „Það fannst mér þegar að ég sat á bekknum. Mér leið eins og þetta væri mitt tækifæri. Sem betur fer þurfti ég bara sjö mínútur í dag,“ sagði Albert Guðmundsson.
Fótbolti Tengdar fréttir Albert kom inn af bekknum og lagði upp sigurmark Albert Guðmundsson lét til sín taka í hollensku úrvalsdeildinni í dag. 21. janúar 2018 17:31 Sjáðu markið sem Albert lagði upp Albert Guðmundsson lagði upp sigurmark PSV í uppbótartíma gegn Heracles á útvielli í hollensku úrvalsdeildinni í gær. 22. janúar 2018 20:45 Mest lesið HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Guðmundur Oddsson látinn Golf Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu Fótbolti Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum Íslenski boltinn Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Enski boltinn Hættir með landsliðinu Fótbolti Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti Fleiri fréttir Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum Taugarnar þandar í endurkomusigri Njarðvíkur Tap í fyrsta leik Söru Bjarkar fyrir Hauka síðan 2008 Hetja Þróttar: „Ákvað að hoppa og vona það besta“ Uppgjörið: Þróttur - ÍBV 1-0 | Þróttarar í bikarúrslit Elfar Árni tryggði Völsungum mikilvægan sigur á Mærudögum United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Afturelding kaupir Kristin Frey frá Val Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Van Bommel tekur við Belgíu Entist skammt í þjálfarastólnum Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp „Nýtt verkefni og nýr leikur“ Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Töluðu við Ancelotti áður en þeir reyndu við Guardiola Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Chelsea að hreppa Lacroix Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Hættir með landsliðinu María lýsir erfiðri meðgöngu: „Þekki mig ekki í eigin líkama“ Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Tvö mörk á tveimur mínútum á elleftu stundu og Grótta bjargaði stigi Uppgjörið: Valur - Zrinjski Mostar 1-0 | Sterkur Evrópusigur hjá Val „Kvöld eins og þetta græðir ekki sárin en lætur þó hlutina vera miklu betri“ „Sigurinn nærir“ „Margt jákvætt í leik okkar að þessu sinni“ Skoruðu fimm í Breiðholtinu og fóru upp í annað sætið Héldu út manni færri þar til átta mínútur voru eftir Sjá meira
Albert kom inn af bekknum og lagði upp sigurmark Albert Guðmundsson lét til sín taka í hollensku úrvalsdeildinni í dag. 21. janúar 2018 17:31
Sjáðu markið sem Albert lagði upp Albert Guðmundsson lagði upp sigurmark PSV í uppbótartíma gegn Heracles á útvielli í hollensku úrvalsdeildinni í gær. 22. janúar 2018 20:45