Birkir og félagar berjast um 24 milljarða á morgun Tómas Þór Þórðarson skrifar 24. maí 2018 23:30 Birkir Bjarnason getur orðið úrvalsdeildarleikmaður á morgun. vísir/getty
Það ræðst á morgun hvort það verða Birkir Bjarnason og félagar í Aston Villa eða Fulham sem fer upp í ensku úrvalsdeildina með Úlfunum og Cardiff en þá fer fram úrslitaleikur umspilsins á Wembley. Villa og Fulham eru félög sem þekkja það vel að vera á meðal þeirra bestu en Villa var eitt þeirra liða sem hafði aldrei fallið þegar að það fór niður vorið 2016. Fulham var búið að vera á meðal þeirra bestu í þrettán ár samfleytt þegar að það féll vorið 2013 en nú eru þau bæði 90 mínútum frá því að komast aftur í gullpottinn sem er enska úrvalsdeildin. Sigurlaunin eru svakaleg en endurskoðendafyrirtækið Deloitte reiknast til að sigurliðið á morgun fái um 170 milljónir punda (24 milljarðar króna) í sinn hlut næstu þrjár leiktíðir og það miðast við að liðið sem fer upp falli aftur næsta vor. Sigurliðið fær að minnsta kosti 95 milljónir punda fyrir það eitt að vera í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð og fallhlífargreiðsla svokölluð ef liðið fellur nemur 75 milljónum punda. Ef liðið sem vinnur á Wembley á morgun heldur sér uppi að minnsta kosti eina leiktíð verður gullpotturinn kominn í 280 milljónir punda eða tæpa 40 milljarða króna. Leikurinn verður í beinni á Stöð 2 Sport HD og hefst útsendingin klukkan 15.55.
Enski boltinn Mest lesið Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Handbolti Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Enski boltinn Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Enski boltinn Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Geta bætt upp fyrir leikinn á Laugardalsvelli Sport Gylfi klár og mun spila stórt hlutverk í kvöld Fótbolti Littler tapaði óvænt á heimsmeistaramóti unglinga Sport Fleiri fréttir Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Sjá meira